Archive for February, 2003

Þannig fór um sjóferð þá

Friday, February 28th, 2003

Þannig fór um sjóferð þá

Og ekki skil ég hvernig Stefán nennti að hanga niðri í bæ til að bíða eftir úrslitunum. Ó nei, þá var betra að vera bara heima og undir sæng að lesa Tinna og Pikkarónanna.

* * *

Mér skilst að Ormurinn hafi lent í svipuðu og ég með bloggið hennar Ernu. Ég meira að segja reyndi að nota linkinn af hinni fornu síðu Ármanns og lennti samt yfir til tvífarans.

* * *

Og svo er það véfréttin að lokum. Verður Írak sprengt í nótt?

Hvað varð um bloggið hennar

Thursday, February 27th, 2003

Hvað varð um bloggið hennar Ernu?

Og af hverju kom hún svo allt í einu aftur? Á hún sér kannski tvífara sem skrifar á ensku? Er ég að missa af einhverju stóru?

* * *

Í gærkvöldi fór ég í fyrsta skipti á hverfisbarinn minn, Kaffi Stíg. Það var áhugavert og flöskubjórinn þar er góður. Ég veit samt ekki hvort ég ætli að verða fastagestur . Þarna var kona sem kyssti Stefán í bak og fyrir og sagði að hann væri frábær. Hún hafði víst séð hann í Silfri Egils.
Mér líst eiginlega betur á að verða fastagestur á Vitabarinum þótt hann sé svolítið lengra í burtu. Við skötuhjúin verðum hreinlega að fara að prufa hamborgarana þar, þar sem allir segja að séu hrikalega góðir.

Það verður þó ekki í kvöld þar sem það verður risa fjölskyldu matarboð á Mánagötunni. Það er eins gott að pasta hússins verði jafn gott og venjulega.

Rock on, dude! You are

Wednesday, February 26th, 2003

I am punk music!!
Rock on, dude! You are Punk music!

What type of music are you?
brought to you by Quizilla

Þetta útskýrir kannski hversvegna ég er búin að einbeita mér að því að vera illa við Bush í allan dag. Vona bara að hann finni hina nístandi strauma sem ég sendi frá mér.

Það er ljós í myrkrinu.

Tuesday, February 25th, 2003

Það er ljós í myrkrinu.

Senn líður að stúdentakosningum… …og

Tuesday, February 25th, 2003

Senn líður að stúdentakosningum…

…og ég fá mig bara engan veginn til að vera spennt og áhugasöm. Það eina sem ég veit fyrir víst er að þarna er einn listi í boði sem ég mun aldrei geta fengið mig til að kjósa og ég harð neita að styðja það með einhverjum málefnalegum rökum.

Um daginn var Eygló að velta því fyrir sér hvað hún ætti að kjósa. Þar sem hún telur sig hvorki geta kosið um menn né málefni mæli ég með því við hana að hún kjósi listan með flottasta barmmerkið!

* * *

Hafið þið skoðað auglýsingabæklinginn sem hefur verið dreift á öll heimili með búningum fyrir Öskudaginn? Þar er sko aldeilis verið að festa kynímyndir í sessi.
Litlar stelpur sem eru eintómar prinsessur og litlir strákar í löggu eða hermannabúningum.

Af hverju lifum við í þjóðfélagi þar sem allt er að? Ef einhver getur bennt mér á eitthvað jákvætt skal ég gefa viðkomandi 12 krónur!

Frábær gjöf Minn elskulegi kærasti

Monday, February 24th, 2003

Frábær gjöf

Minn elskulegi kærasti gaf mér alveg frábæra gjöf í tilefni konudagsins. En það var bók um feminisma.
Það verður gaman að lesa hana og enn betra að ég get lesið hana án þess að hafa sérstakt samviskubit yfir að skólabækurnar sitji á hakanum.

* * *

Annars var þetta erfið helgi sem með öllu sínu skemmtanaveseni gerir það að verkum að ég er ekkert sérlega hress í dag.

Á föstudagskvöldið stóð Kynvera (félag kynjafræðinema) fyrir bjórkvöldi á Dillon. Þar var feikna stuð. Dillon er líka staður sem er virkilega að vinna á hjá mér. Svolítið slísí en með sjarma. Og góða tónlist. Það var frábært að vera loksins innan um fólk sem var tilbúið til að dansa og syngja hátt með lögunum af Stelpurokki.

Stelpur! Þið munið hvað við ræddum um. Þið verðið að hafa samband við mig og svo drífum við í að framkvæma!

Laugardagskvöldið fór aftur í jamm, í útskriftarveislu hjá Önnu frænsku Stefáns. Ég er að hugsa um að segja ekkert sérstaklega frá því. Enda kvöldið í hálfgerðri móðu.

Lödu söknuður Mig dreymdi Löduna

Thursday, February 20th, 2003

Lödu söknuður

Mig dreymdi Löduna hans pabba. Þegar ég vaknaði helltust yfir mig minningarnar um þennan mjög svo misheppnaða bíl sem svo hrikalega margt gerðist í. Í draumnum var hún búin öllum gömlu eiginleikunum. Bensínlyktin og kraftleysið voru þarna og ég að reyna að juðast upp Urðarteginn í fyrsta gír með tilheyrandi hávaða. Og Ladan hafði meira að segja bætt við sig nýjum eiginleika sem ég varð eftirá eiginlega hissa á að hefði ekki einkennt hana í raunveruleikanum. Hún var komin með lélegar bremsur. Svo lélegar að þegar ég bakkaði út úr stæðinu hjá Hrönn var ég næstum búin að keyra á bílinn hennar Bjarkar. Og Björk skammaði mig. Það var ekki gaman að vakna og sjá að þetta var bara draumur. Those were the days…

* * *

Lonni er loks farin að blogga. Nú bíð ég spennt eftir torfærusögum af nýja ofurstólnum.

Bráðum kemur Hrönn Bryndís virðist

Tuesday, February 18th, 2003

Bráðum kemur Hrönn

Bryndís virðist hafa aðrar hugmyndir um skemmtun en við Stefán en við fórum skötuhjúin fórum einmitt á Beðið eftir Godot og fannst gaman. Við Stefán hljótum að vera eitthvað skrítin því einhverra undarlegra hluta vegna finnst mér allir vera á Bryndísar línu.

Annars fórum við Stefán aftur í leikhús á sunnudagskvöldið en ég held að við höfum verið að ræða að sjá Sölumaður deyr frá því áður en verkið var frumsýnt. Okkur var nær að gera svona mikið grín að því að Daði og Auður hafi aldrei notað leikhúsmiðana sem þau létu okkur erfa þegar þau fluttu af landi brott. Það tók okkur ekki nema u.þ.b. hálft ár að koma því í framkvæmd að nota þá.

Annars eru góðir dagar framundan. Það er von á Hrönn í bæinn um næstu helgi og hún er strax búin að athuga hvort ég muni ekki hafa tíma til að drekka bjór með henni. Mér skilst að hún komi ein þannig að líklega er fyllsta ástæða til þess að hafa áhyggjur af Svenna og því hversu heimakær hann er orðinn.

Tímasóun Aldrei þessu vant las

Thursday, February 13th, 2003

Tímasóun

Aldrei þessu vant las ég grein á vefriti. Ég verð þó að viðurkenna að ég skildi hvorki haus né sporð af henni. Röksemdarfærslan er einhvernvegin svona: Iðnríki eyða of miklum peningum í vopn og geta þess vegna ekki veitt þróunarríkjum næga aðstoð. Þó er ekki raunsætt að iðnríkin afvopnist og stríð í Írak er óumflýjanlegt. Við verðum þó á sama tíma að tryggja stöðugleikann svo að öryggi okkar verði nú örugglega borgið. Greinin endar með því að segja að : “Stríðið við fátæktina verði langt og strangt – en um leið ódýrara en nokkuð stríð sem þau há í dag.” Er niðurstaðan semsagt sú að af því að það er svo ódýrt að berjast við fátækt getum við í rauninni haft það sem hiliðarverkefni á sama tíma og við berjumst í öðrum “alvöru” bardögum?

Af hverju eyðir maður dýrmætum tíma sínum í að lesa svona hluti?

Lævíst útspil Stefáns Jæja, þá

Tuesday, February 11th, 2003

Lævíst útspil Stefáns

Jæja, þá held ég að ég sé hætt að vera veik í bili, allavega svona fyrir utan ansi þrálátan hósta. Svo núna tekur alvaran við, semsagt endalausir fundir. Það verður efalaust alveg hrikalega gaman.

Ef Stefán hefur trú á þessari baráttuaðferð er það mér alveg að meinlausu. Vona bara að hann passi að gæta almenns velsæmis ef hann gegnur í þetta af fullum kröftum. Hef meira að segja smá trú á aðferðinni. Fólk er allavega ekki að gera neitt af sér á meðan.
Annars finnst mér þetta vera ansi lævís leið hjá honum til að fá mig til að blogga. Hann hefur verið að kvarta undanfarna daga yfir því hvað það sé langt síðan að ég skrifaði eitthvað síðast. En allavega, þá færðu að hafa alveg frjálsar hendur í þessu máli. (Hey, þetta gæti verið tvíræður djókur).