Fimar skellibjöllur Í tíma áðan
Fimar skellibjöllur
Í tíma áðan fór þjófavarnarkerfið í skjávarpanum í gang. Það er versta hljóð sem ég hef heyrt í dag.
Vinkona langömmu minnar kallaði okkur Bryndísi alltaf skellibjöllur. Ég held að það hafi að hluta stafað af því hvað það voru alltaf mikil læti í okkur. Við dunduðum okkur til dæmis oft við að æfa fimleika á ganginum í gamalmennaíbúðunum. Eftir á að hyggja held ég að við höfum ekki verið neitt sérlega fimar.