Það er erfitt að þykja
Það er erfitt að þykja vænt um fiska!
Ég er farin að tengjast Fiski tilfinningarböndum. Það er ekki gott þar sem það er líklegra en ekki að ævi hans verði fremur stutt. Í gær skiptum við um vatn í búrinu hans og ég var með stöðugar áhyggjur af því að þetta gæti orðið honum ofviða. Miðað við stressið sem heltók mig er eins gott að við skiptum ekki neitt sérlega oft um vatn.