Freskjur og önnur furðudýr Ég
Freskjur og önnur furðudýr
Ég og Stefán héldum í gær áfram að velta fyrir okkur orðum með forskeitið Ó. Eitt orðana sem við ræddum um var orðið ÓFRESKJA. Samkvæmt orðabók getur það til damis þýtt skrímsli. Mér finnst samt orðið FRESKJA miklu hræðilegra. Ég fann það reyndar ekki í orðabók en mér finnst samt eins og að það sem er FRESKJA hljóti að vera miklu hættulegra og ógeðslegra en það sem er ÓFRESKJA.
Samkvæmt þessum nýfengna skilningi mínu eru ÓFRESKJUR góðar. Gott ef ekki vinir mínir.
* * *
Fyrir tæpri viku sagði Smári frændi mér að hann læsi stundum bloggið mitt. Það fór kaldur hrollur um mig. Það er hreinlega með ólíkindum hversu mikið af eldri ættingjum lesa svona lagað.
Smári bennti mér á að Erna Björg litla frænka mín væri flutt til Danmerkur og að hún bloggaði. Þetta hafði ég auðvita ekki hugmynd um þar sem ég er ekki ættræknasta manneskja í heimi. Á síðunni hennar Ernu fann ég link yfir á Ósk. Ekki vissi ég heldur að hún væri í lögfræði. Mér líst ekkert á það eða vefritin sem hún linkar á.
August 16th, 2004 at 11:02 am
I’ve given up reading books; I find it takes my mind off myself.
fioricet