Í dag er ég svo
Thursday, January 30th, 2003Í dag er ég svo glaður svo glaður svo glaður…
Aldrei þessu vant vaknaði ég hrikalega hress og kát klukkan 8:10 í morgun. Fór í tíma og hafði skoðanir á öllu sem er frekar sjaldgæft fyrir hádegi. Var bara frekar ánægð með sjálfa mig. Náði meira að segja að gera smá grín að Framsóknarflokknum.
Svo var ég núna að koma af alveg óskaplega fróðlegu rabbi á vegum rannsóknarstofu í kvennafræðum þar sem Kristjana Stella Blöndal og Þorgerður Einarsdóttir ræddu um launakannanir og kynbundin launamun. Það er alltaf svo gaman þegar maður lærir eitthvað nýtt og finnst maður hreinlega vera betri manneskja fyrir vikið. Ég get allavega alveg örugglega verið meira böggandi manneskja í fjölskylduboðum framtíðarinnar fyrir vikið. Ó hó ég er hreinlega farin að hlakka til næsta boðs.
Annars gerðist það undur og stórmerki í dag að ég fékk bréf frá Stefáni Jónssyni. Það var langt og algerlega í hans stíl. Mikið af vangaveltum og efasemdum. Það er gott að vita að drengurinn virðist vera í góðum gír.
En núna er ég farin að fá mér að borða. Ákvað að splæsa bara í langloku og appelsín svona í tilefni þess hvað þetta er búinn að vera góður dagur hingaðtil.