Er gas í loftræstikerfinu? Ég
Er gas í loftræstikerfinu?
Ég er komin á þá skoðun að loftræstikerfi Þjóðarbókhlöðunnar spúi eiturgufum. Vonandi er dagurinn í dag sá síðasti í töluverðan tíma sem ég þarf að hanga hér.
Verst er að þá tekur við að vinna á skítnum og sóðaskapnum heima. Ef ekkert verður gert í málunum er hætt við að heilbrygðiseftirlitið fari að blanda sér í málið.
* * *
Annað kvöld förum við skötuhjúin á jólablót. Þar verður Gullinbursti snæddur og aldrei að vita nema hrossakjöt hafi náð að smygla sér inn á matseðilinn. Ég held samt að þesst sé ekki rétti árstíminn fyrir það. Guðaveigar verða einnig þjóraðar. Almenn þreyta og uppsafnaður námsleiði hafa þó þau áhrif að líklega er vissara að fara frekar varlega í þær sakir.
Ó hvað ég hlakka til að komast í jólafrí!