Miðalda eip Ef einhver hefði
Miðalda eip
Ef einhver hefði einhverntíma sagt við mig að ég ætti eftir að sitja niðri á þjóðdeild og rýna í Jónsbók og Járnsíðu hefði ég hlegið þar til ég hefði fengið hiksta. En engu að síður hef ég verið að dunda mér við þetta síðustu tvo tímanna. Ég skil eiginlega ekkert í því sem þarna stendur. Það hefur samt gengið töluvert betur síðasta hálftímann en fyrsta hálftímann. Ég er samt hrædd um að niðurstöður mínar verði hálf skrautlegar.
En eftir þetta alltsaman get ég þó allavega sagt að ég er dauðfegin að vera ekki eiginkona á miðöldum. Það hefði alltaf endað með ósköpum og ég hefði ekki einu sinni getað skilið nema með heilmiklu veseni. Það er samt ekki alveg víst að ég hefði getað gift mig þar sem ég hefði ekki átt nógu mikinn peníng. Þá hefði ég kannski orðið frilla í staðinn. Ég held samt að pabbi hefði reynt að nurla saman aur til að gifta mig. Það er bara verst að smekkur okkar pabba á fólki er ekki alveg sá sami. Ég er samt viss um að ég hefði getað talað hann inná að leyfa mér að giftast Stefáni.
* * *
Bryndís! Salný og Alli eru með jólakortið til þín. Ég þorði ekki annað en að láta þau hafa það, svona ef við sjáumst ekkert fyrir jólin.