Hætti við kynlífið og ákvað
Hætti við kynlífið og ákvað að taka skilnaði framyfir
Æi já. Ég komst að þeirri niðurstöðu að það væri mun aðgengilegra að skrifa um hjónaskilnaði en kynlíf. Það er líka varla hægt að hugsa sér dapurlegra hlutskipti en að sitja á bókhlöðunni og velta sér upp úr kynlífi. Get ímyndað mér mun skemmtilegri aðstæður til þess.
* * *
Jólasendingin frá pabba komst klakklaust til skila (svo er allavega að sjá…vona bara að jólin endi ekki með iðrakveisu). Flytjanda tókst að klúðra merkingum á pakkanum svo ég var farin að hafa verulegar áhyggjur af því að fá frosna osta og frosið hangikjöt. En þannig vildi til að öðlingurinn hann faðir minn ákvað að senda mér jólaglaðninginn sem hann fékk frá SVN. Ég hef reyndar smá áhyggjur af því að vegna deilna pabba við fyrirtækið sé búið að setja arsinik í skammtinn sem ég fékk (þannig að það er jafnvel ástæða til að hafa áhyggjur af fleiru en iðrakveisum)
* * *
Ákveðin atriði hér valda mér smá áhyggjum. Er þetta kannski ástæðan fyrir því að hann er alltaf farinn í vinnuna þegar ég vakna?