Allur þessi lestur mun enda með ósköpum
Ég er hrædd um að prófalestur sé að koma mér í ógöngur. Mér er farið að finnast að ég sé komin með ágætis heildarmynd af námsefninu en á sama tíma er eins og rödd í höfðinu á mér hvísli að þessi hugmynd sé sprottin upp vegna lestrarleiða. Hvort er þá betra að taka pásu eða halda lestrinum ótrauð áfram? …humh…eftir smá umhugsum líst mér betur á pásuna.
Ég fór til Dr. Gunnars áðan og sótti mér heimaprófið sem ég verð að taka næstu vikuna (ég ætla samt ekki að byrja að hugsa um það af alvöru fyrr en eftir kl. 12 á morgun þegar ég er búin í hinu prófinu). Ritgerðarefnið sem mér finnst hljóma skemmtilegast er trikkí efnið sem bara þeir sem eru og vitlausir velja. Þannig að það er eins gott að sleppa því. Kannski sé skrifi bara um rétt fólks til að stunda kynlíf í gegnum Íslandssöguna. Ég hlýt að fara að verða hinn mesti kynlífsspekúlant þar sem ég er alltaf að lesa um kynlíf og klám. Einhvernvegni finnst mér öll mín háskólaár hafa meira eða minna snúist um kynlíf. Þ.e. fræðilegt kynlíf. Það er kannski bara ágætt þar sem Playboy og Hustler hafa aldrei höfðað til mín.
Það var samt gaman þegar við fórum inn í Fannardal og grófum upp klámblöðin! Man einhver eftir því? Kannski þessi ferð hafi sett mun meira mark á líf mitt en ég hafði áður gert mér grein fyrir!?
* * *
Er Faldafeykir ekki eldra nafn á Hurðaskelli?