Það er víst eins gott
Það er víst eins gott að bretta upp á ermarnar…
…þar sem ég var að fatta að ég á að skila einu stykki ritgerð upp á 3000-4000 orð á þriðjudaginn. Þetta verður gaman, sérstaklega í ljósi þess að Mark Steel er lentur og það er nún ekki hægt að missa af honum. Svo er heldur ekki hægt að sleppa landsráðstefnunni á laugardaginn. Það er semsagt ekki um annað að ræða en að vera alveg hrikalega dugleg á morgun og sunnudaginn.
Annars er ég orðin frekar spennt að sjá þennan Steel sem á að sofa í rúminu mínu næstu dagana…