Archive for September, 2002

Sverrir á hálum ís! Rétt

Monday, September 30th, 2002

Sverrir á hálum ís!

Rétt í þessu (ég er stundum svolítið lengi að tengja) var ég að fatta að Sverrir hefur linkað á síðu hjá menneskju sem hann hefur iðulega haldið fram að sé ekki til. Nú er bara spurning hvort hann ætli að standa við fyrri orð sín?

Bryndís er frekar sár yfir tilvistarleysi sínu.

Urmh Vá, það er orðið

Monday, September 30th, 2002

Urmh

Vá, það er orðið langt síðan ég hef bloggað, alveg heilir fjórir dagar. Barkinn er ekki alveg að taka við sér. Ætli ástæðan sé að ég sé búin að hafa mikið af mikilvægari hlutum að gera?-Já,já því ekki að segja það bara.

Ég var t.d. upptekin af því að fara í bíó en á laugardagskvöldið skelltum við fjölskyldan (mamma og systkyni mín) okkur á Hafið. Mér fannst myndin ágæt og vinna mikið á eftir hlé. Annars vorum við aðallega að skemmta okkur yfir aukaleikurunum. Stefán Þorleifsson reykir t.d. eins og hann hafi aldrei gert annað alla sína æfi, íþróttafrömuðurinn sjálfur. Ég held að það sé óþolandi að fara með Norðfirðingum á þessa mynd. Þeir bara geta ekki annað en hlegið á vitlausum stöðum.
Í gærkvöldi fórum við Stebbi svo á 24 Hour Party People-algjör snilld. Við neiddumst til að fara bara tvö, ein. Það var reyndar ekki svo slæmt.

Annars verð ég að lýsa efasemdum mínum á það framtak Stefáns að ætla að verða besti og frægasti bloggari á Íslandi en hann um það! Ég vona bara að hann hafi fleiri markmið í lífinu.

Og svo rétt að lokum:
Ég veit hver á skóna og ég veit líka að eigandinn hélt að þeir hefðu týnst!

Bragðgóð afmælisgjöf Í gærkvöldi bauð

Thursday, September 26th, 2002

Bragðgóð afmælisgjöf

Í gærkvöldi bauð Stefán mér út að borða á Humarhúsið. Tilefnið var afmælið mitt í síðustu viku. Þetta var ein besta afmælisgjöf sem ég hef nokkurntíma fengið. Allavega sú lang bragðbesta. umm!

* * *

Annars lennti ég í nokkuð merkilegu um daginn. Eða það finnst mér allavega. Ég fór á klóið á svona semí almenningsklósetti, það var á vinnustað. Á gólfinu var tímarit sem einhver hlýtur að hafa verið að lesa. Ég er allt of spéhrædd til að taka lesefni með mér á svona næstum almenningsklósett. Hjá vöskunum voru bunkar af blöðum sem ég gat ekki betur séð en að ætlast væri til að fólk læsi inni á klósetti.
Það er betra að vara fólk við. Ég hef heyrt að mikill lestur á klósettum geti leitt af sér gyllinæð.

Allir eru með typpi!! Í

Wednesday, September 25th, 2002

Allir eru með typpi!!

Í gærkvöldi las ég skemmtilega frásögn af því hvernig börn eiga oft erfitt með að tengja félagslegt kyn ((gender) stundum einnig nefnt kyngervi á íslensku) við líffræðilegt kyn.

Lítill drengur fékk að fara í leikskólan með spennu í hárinu. Þar fékk hann að vita hjá öðrum litlum dreng að hann væri stelpa, vegna þess að stelpur væru bara með hárspennur. Drengurinn með spennuna þrætti fyrir það. Víst væri hann strákur, hann væri með typpi. Á endanum tók hann niður um sig buxurnar og sannaði að hann væri með typpi. Viðbrögðin sem hann fékk frá hinum drengnum voru svarið: Allir eru með typpi en bara stelpur eru með spennur!

Þá vitum við það!

Annars er bókin sem ég las þetta í, Gender and families alveg frábær. Góð lesning fyrir þá sem vilja verða meðvitaðri um þætti sem settir eru í samhengi við kynferði en tengjast því ekki baun.

Nýr bloggari er vonandi að

Tuesday, September 24th, 2002

Nýr bloggari er vonandi að bætast í hópinn!

Þá er Stefán loks búinn að koma áætlun sinni um að stofna bloggsíðu á Bryndísi í framkvæmd. Fæðingin gekk víst hálf brösulega en nú er þetta allt loks yfirstaðið. Eins og aðrir vonast ég til þess að Bryndís verði iðin og skrifi mikið. Ég veit að hún telur Ármann vera með titilinn sem hún ætti að hafa en Borg óttans hljómar ekki illa. …eða reynda jú, það hljómar skelfilega!

Nú bíð ég bara spent eftir því að fá mikla gagnrýni á feminiska hugmyndafræði frá stúlkunni. Enda telur hún það vera eitt af megin hlutverkum konunnar að hugsa vel um karlmennina sem í kring um hana eru og láta þeim líða vel. Þeir séu bara allt of óskiljanlegar og tilfinninganæmar verur til að hægt sé að gera kröfur til þeirra. Eða eitthvað svoleiðis.
Áhyggjur Stefáns af því að hún muni berja hann eru því ekki á rökum reistar. Það samræmist bara ekki skoðunum hennar að berja karlmenn. Það væri því mun nærtækara fyrir mig að hafa áhyggjurnar.

Ég kem óskaplega þreytt undan

Monday, September 23rd, 2002

Ég kem óskaplega þreytt undan þessari helgi - En það er þó bót í máli að ég er ansi sátt við hana!

Aðalfundur MS-félagsins gekk nánast of vel. Hann gekk svo vel að ég náði drjúgum tíma á UVG aðalfundi. Sem er gott.

Ég fékk verðskuldaðar skammir á laugardagskvöldið, við verðum að vera opnari fyrir þeim sem koma nýjir inn á fundi. Það er ömurlegt að vera nýja manneskjan á svæðinu og fá það á tilfinninguna að maður sé ósýnilegur. Eyrún fagnaði því þó, að við urðum öll mannleg með hækkandi hlutfalli áfengis í blóði okkar.

Nú verð ég að taka mér tak og fara að segja nei við fólk, sérstaklega sumt fólk. Nánast stanslausir verkir í fótunum þýða bara eitt: Ég er ekki að fara nógu vel með mig.
Vandinn við þetta er bara sá að ég umgengst greinilega allt of mikið af skemmtilegu fólki, sem er stútfullt af góðum hugmyndum sem bara verður að reyna að koma í framkvæmd. Svo eru reyndar aðrir sem hafa verri hugmyndir (jafnvel alslæmar) sem einnig er reynt að fá mig, ekki bara til að vera með í, heldur til að framkvæma.
Ég er að komast í gírinn, nú er bara að halda þessu viðhorfi fram yfir hádegi og ég verð strax í betri málum. Ég meina, eiga fjáraflanir ekki að vera í höndum þeirra sem kosnir eru í fjáröflunarnefnd?

Ég hlýt að hafa hagrætt

Wednesday, September 18th, 2002

Ég hlýt að hafa hagrætt sannleikanum eitthvað !

I WAS A GIFTED CHILD
i had my niche.
intelligent. creative. or artistic.
what kind of child were you?
(brought you by april)

Jei!!! Mætti í fyrsta tímann

Tuesday, September 17th, 2002

Jei!!!

Mætti í fyrsta tímann í Kynferði og hnattvæðingu í dag. Það ver stórfínt og skemmtilegar umræður. Ég held þó að það geti varla verið gaman ef maður trúir blint að nýfrjálshyggjan muni bjarga öllu, ekki síst þriðja heiminum. Þetta kúrs gengur einmitt útá að afbyggja þá hugmynd. Eða það er allavega þannig sem ég held að það muni koma út í praxís.

* * *

Gneistinn er búin að gera mig að einhverskonar mola. Tölvuvit mitt er lítið svo ég skil ekki alveg hvað það er. Hef samband við drenginn en bara ekki alveg núna, það er bara allt í einu eitthvað svo mikið að gera hjá mér.

Ógeð!!! Bryndís spurði mig áðan

Monday, September 16th, 2002

Ógeð!!!

Bryndís spurði mig áðan hvort ég vildi smakka “ógeð” og einhverra undarlegra hluta vegna var forvitni mín vakin. Næst spurði hún mig hvort ég þekkti ekki lyktina af sítrónu ajaxi. Ég hélt það nú (skúra oft á dag með því). Hún sagði að það sem ég væri að fara að smakka væri eiginlega eins og maður gæti ímyndað sér bragðið af sítrónu ajaxi.
Hljómar vel, ekki satt?
Það sem stúlkan dró upp var poki með Extra tyggjói. Reyndar týpa sem ég hafði ekki séð fyr, í millistiginu af gulum og karrígulum poka. Á því stóð að tyggjóið væri með mintu og sítrónubragði.

…og viti menn, þó svo að ég ætli ekki að sannreyna kenninguna, þá held ég að ajax samlíkingin sé alls ekki fjarri lagi! Þetta var algjört ógeð!

Lærdómshelgin mikla er að leysast

Saturday, September 14th, 2002

Lærdómshelgin mikla er að leysast upp í tóma vitleisu!

Hin miklu og göfugu áform mín um að vera dugleg að læra um helgina eru smámsaman að fara út í veður og vind. Síðustu 45 mínúturnar er ég t.d. búin að hanga á netinu í þjóðarbókhlöðunni í staðinn fyrir að plægja í gegnum einn kafla í bókinni Gender and families. Og nú fer Stefán (sem er hættur að vera fastur á Höfn) bráðum að sækja mig. Og er líklegt að ég nái að læra mikið með hann hangandi í kringum mig?

Ég verð að fara að temja mér að vera skipulögð og að gera það sem ég legg upp með að gera.