Barferð með landsins efnilegasta syni
Friday, August 30th, 2002Barferð með landsins efnilegasta syni
Fundurinn í gær var fínn og greinilegt að það verður nóg að gera í haust og vetur. Mætingin var góð og Melli og Stebbi fengu far með mér. Hápunktur fundarins var bréf sem Siggi Flosa er búin að skrifa. Það er hreinasta snilld!
Eftir fundinn fórum ég, Stebbi, Sverrir og Hrafnkell á Nelly’s (sem ég var að koma inná í fyrsta skipti í mörg ár). Stebbi Þorgríms var latur og fór bara heim. Palli og Hildur ætluðu líka að koma en þau sviku okkur. Sverrir virtist hafa öðrum hnöppum að hneppa og fór eftir mjög skamma stund. Við þrjú, sem eftir vorum, skemmtum okkur hið besta við drykkjuleik sem Hrafnkell kenndi okkur!
Melli er ekki lengur með gemsa. Hann týndi honum á flótta undan ísraelskum hermönnum. Töffaralegt, en aðstaða sem ég hefði ekki viljað lenda í.
Melli stefnir á ferðalan til austur-evrópu, á vit ástarinnar. Vona að þar gangi allt að óskum! Ef æfi hans endar á tragískan hátt meðan á ferðalaginu stendur erum ég, Stebbi og Sverrir komin með kvikmyndaréttinn. Vonandi kemur þó ekki til þess að við notum okkur hann. Melli er of góður drengur og svo er hann líka landsins efnilegasti sonur. Um það eru flestir sammála.