Archive for July, 2002

Kommóðan er komin í hús…

Wednesday, July 31st, 2002

Kommóðan er komin í hús…

…ásamt nokkrum óvæntum hlutum sem hjónaleysin ákváðu að við Stebbi skyldum erfa. Nr.1: ljósritunarkort. Ég ætla að eiga það ein, enda getur Stefán ljósritað á kostnað Orkuveitunnar. Nr.2: Niðursuðudós með einhverju undarlegu jukki. Það verður kannski haft í matinn þegar buddan er sérlega tóm eða við í mjög djörfu skapi og tilbúin til að prufa undarlegar nýjungar. Nr.3: Unaðssemdir Taó erótískrar nuddlistar. Þau virðast hafa áhyggjur af því að sambandið sé eitthvað að kulna. Ég blaðaði aðeins í bókinni í gær. Það mun taka óratíma að þjálfa sig upp í þessari nuddtækni. Svo virðist mér líka sem full mikil dulhyggja sé tengd þessu. Þannig að bókin verður sett í bið. Nema náttúrulega ef Stebbi vill skoða hana.

Annars horfði ég á sjónvarpið í heilt kvöld í gær. Siska kom skemmtilega á óvart. Kannski ekki þess virði að sleppa því að gera eitthvað annað en ágæt dægrastytting.
Mér fannst sérstaklega skemmtilegt þegar þátturinn var búinn og Siska og samstarfsmenn hans voru að labba á jafnvægisslánni.

Svo tók merkjagerð við. Það er bara ekkert skemmtilegt við að gera stóru merkin. Það þarf nefninlega ekki að setja nælurnar í þau. Þær eru fastar vð merkin. Ég er því óþörf við stóru-merkjagerðina. Það sama gildir um Sverri og Ármann.

Mikið er ég fegin að

Tuesday, July 30th, 2002

Mikið er ég fegin að ég sé ekki að flytja!

Það er eins og nánast allir í kringum mig séu og flytja þessa dagana. Eða frekar að pakka niður og flytja svo á alveg næstu dögum. Það er líka smá leiðinlegt því þá verða ekki jafn margir eftir til að leika sér við.

Hrönn og Svenni eru að flytja austur og koma til með að búa þar allavega næsta árið. Það er reyndar pínulítið fyndið að þegar Hrönn ákvað að flytja aftur “heim” ákváðu foreldrar hennar að flytja til Kanada í eitt ár. Það er til að vera nær barnabarninu sínu. Við í vinahópnum erum margoft búin að benda Hrönn á að til þess að öðlast aftur athyggli foreldra sinna verði hún einfaldlega að eignast barn. Þá verður hún aftur samkeppnisfær við Hörpu systur sína.

Daði og Auður eða Dauður, eins og við gárungarnir segjum, eru að flytja til Danmerkur. Þau búa núna í risíbúð í Bjarnaborg og Auður er að verða vitlaus á því að bera dót niður úr risinu. Þau ætla að taka sem minnst með sér út svo núna er gósentíð fyrir okkur vinina sem erum ekki að fara neitt. Þau ætla t.d. að gefa mér kommóðu, ég þarf bara að koma og sækja hana. Það er nú gott að Stefán er sterkur sem naut og boðin og búinn til að bera fyrir mig.

Það verður þó að segjast eins og er að það er einn kostur við að flytja. Þá hendir maður nefninlega svo miklu af drasli sem maður er búinn að vera að sanka í kringum sig og þá er einmitt hægt að koma allskonar húsgögnum yfir á vini sína.

Eftir smá vesen tókst mér

Friday, July 26th, 2002

Eftir smá vesen tókst mér að komast í tölvurnar!

Ég var komin upp í Þjóðarbókhlöðu þegar ég fattaði að ég hefði ekki tekið nýja lykilorðið mitt með. Hrönn var ekki á sínum vanalega stað á 3.hæðinni svo ég hringdi í hana. Hún var niðri í þjóðdeild. Ég fékk að fara í tölvuna hjá henni til að finna lykilorðið mitt og er núna búin að skrifa það niður á blað. Það var greinilega ekki nóg að krota það á hendina, það er reyndar ágætt að það var ekki nóg, því nú hef ég fengið sönnun þess að ég baða mig og greinilega reglulega.

Niðri í þjóðdeild hitti ég Helgu mömmu Palla. Það er alltaf gaman að hitta hana.

***

Það er óvænt ánægja að sjá að Ármanni finnst Red Hot Chili Peppers töffaraleg hljómsveit. Einusinni var ég töluverður aðdáandi þeirra. Það var á Skid Row tímabilinu mínu. Ég held að Ármann geti verið fullviss um að þeir séu eldri en hann. Annað getur bara ekki verið.

***

Það er komin stundarskrá fyrir kynjafræðina inn á netið. Það vanntar inn á hana kúrsinn sem ég skráði mig í hjá Gunnari Karlssyni. Ég gat heldur ekki fundið hann á stundarskrá sagnfræðinema. Reyndar var ekki einn einasti kúrs þar sem Gunnar kennir. Getur einhver af sagnfræðingavinum mínum sagt sér hvað er í gangi? Hrönn starfsmaður Gunnars veit ekki neitt í sinn haus. Allavega ekki neitt sem viðkemur Gunnari og kennslu hans.

Hræðsla við skuldbindingar Ég óska

Thursday, July 25th, 2002

Hræðsla við skuldbindingar

Ég óska Palla og Hildi til hamingju með nýju íbúðina. Að kaupa sér íbúð er ein af þeim ákvörðunum og skuldbindingum sem ég þyrfti að taka mig mikið á til að höndla. Það er ekkert eðlilegt hvað ég er hrædd við allar skuldbindingar.

***

Ég tók mér fréttabréf Alþjóðahússins í Alþjóðahúsinu í gær. Þegar ég fór að skoða það komst ég að því að það er síðan í mars. Það var samt margt ágætt í blaðinu.

Aftur tengd! Nú eru góðir

Wednesday, July 24th, 2002

Aftur tengd!

Nú eru góðir tímar framundan því ég er aftur orðin tengd Háskólanetinu og get því hangið á netinu án þess að símareikningurinn minn verði svimandi hár. Það er líka gott því þá get ég leikið við Hrönn síðustu dagana sem hún er að vinna fyrir Gunnar Karlsson. Það er samt pínu hætt við að henni verði ekki mikið úr verki með mig hangandi yfir sér. Hún er þó allavega komin með bílstjóra sem getur skutlað henni niður í bæ, þegar hún þarf að sinna smáerindum.

Gallinn við það að tengjast að nýju er að núna er ég komin með nýtt lykilorð. Ég held að ég muni aldrei læra það, svo það er kannski bara eins gott að breyta því strax.

Póstfangið mitt virðist aldrei hafa verið gert óvirkt og ég kemst bara inn á það með gamla lykilorðinu (sem virðist vera búið að taka sér bólfestu í fingrunum á mér. Ég gat alls ekki rifjað það upp en svo sló ég það inn án nokkurar fyrirhafnar). Þegar ég opnaði póstinn biðu mín 125 bréf. 123 voru ruslpóstur sem ég hennti án þess að opna. 2 voru tilkynningar frá Háskólanum, sem löngu voru orðnar úreltar, svo ég hennti þeim líka án þess að opna þær. Þetta fannst mér ekki gaman og þrátt fyrir að ég hafi allan tíma í heiminum fannst mér þetta tímasóun.

Aldrei þessu vant tel ég

Tuesday, July 23rd, 2002

Aldrei þessu vant tel ég mig hafa skilið Bakþanka Sigurjóns M. Egilssonar!

Mér fannst þeir þó vera frekar skrítnir, en í þetta skipti tel ég mig nú samt hafa haldið þræðinum alveg út í gegn og svosem skilið hvað hann ætti við. Svo gott hefur það alls ekki verið í hin tvö skiptin sem ég man eftir að hafa lesið Bakþanka eftir hann í Fréttablaðinu. Núna bíð ég bara spennt eftir að hann skrifi aftur. Ætli mér takist að skilja í annað skipti?

Ég var búin að gleyma

Monday, July 22nd, 2002

Ég var búin að gleyma að ég þoli ekki fólk…

…eða þannig. Ég og Stefán Jónsson komumst að því um helgina að líklega væri best að flokka okkur sem mannblendnar mannafælur!

Efnilegt eða hvað?

Hnífapörin endurheimt en heilsan kemur

Saturday, July 20th, 2002

Hnífapörin endurheimt en heilsan kemur ekki!

Á fimmtudaginn komu Daði og Auður og heimsóttu mig og Stefán, heim til Stefáns. Það var mjög ánægjulegt þar sem ég hef ekki séð þau hjónaleysin í háa herrans tíð og svo skiluðu þau líka til mín hnífapörunum mínum sem þau eru búin að vera með í láni síðan í vetur. Nú get ég aftur farið að venja mig á að borða með hníf og gafli.

***

Annars hélt ég áfram í gær að vera slöpp og vera með hita. Það virðist samt ekki vera í neinu sambandi við vampírubitið, þar sem það er nánast horfið. Stefán fór út í gærkvöldi en ég var skilin eftir heima og hvött til að halda mig innanhúss. Ég ákvað í mikilli heimsku að bjór myndi líklega bæta upp á ástand mitt, svo ég sat heima undir teppi og drakk bjór og horfði á Múmínálfana. Það var ekki góð hugmynd!

***

Að lokum óska ég Jóhönnu til hamingju með sigurinn og Bryndísi til hamingju með sigurlaunin!

Ég hef orðið fyrir vampíruárás!

Thursday, July 18th, 2002

Ég hef orðið fyrir vampíruárás!

Þegar ég vaknaði seint í morgun, af því ég er veik og er með hita, fann ég mikinn kláða utaná hálsinum. Þegar ég fór að spegli og skoðaði svæðið þar sem kláðinn var mestur sá ég mér til mikillar skelfingar að líklega hef ég verið bitin af vampíru. Þegar mamma var búin í vinnunni í dag kom hún í smá sjúkravitjun til mín. Ég sýndi henni bitið. Hún heldur að ég hafi ekki verið bitin af vampíru, heldur hafi hún meira svona nartað í mig.

Er það betra?

Palli virðist vera eitthvað sár!

Wednesday, July 17th, 2002

Palli virðist vera eitthvað sár!

Það lítur út fyrir að Palli hafi orðið eitthvað sár vegna skrifa Stefáns um Eskifjörð og hugsanlega líka út af kortinu frá Norðfirði. Ég hef nú samt heyrt um það talað að það hafi staðið til að breyta veginum þannig að hann lægi fyrir ofan bæinn en að Eskfirðingar hafi hins vegar neitað því.

Það er þó gott að Palli skuli meta Tónspil að verðleikum. Pétur í tónspil er líka algjör snillingur!