Archive for June, 2002

Djúpalaugin! Nonni kom í kaffi

Saturday, June 29th, 2002

Djúpalaugin!

Nonni kom í kaffi áðan. Það var mjög gaman því ég hef ekki hitt drengin í óratíma, þar sem hann er alltaf einhversstaðar úti á sjó á VeisluSkipinu Tý, að sigla með ráðherra og Alþingismenn. Vs. er greinilega mikil skemmti skúta.

Nonni sagði mér að hann hefði séð að Hálfdán, fyrverandi bekkjabróðir hans, hefði séð um Djúpulaugina í gær. Svo ég ákvað að horfa á endursýninguna núna áðan. Mér fannst þátturinn hvorki betri né verri en aðrir þættir sem ég hef séð. Mér fannst samt frekar lélegt af Hálfdáni að velja Grét.Sig sem viðmælanda úr salnum. Þeir eru æskufélagar og frændur.

Annars hef ég verið að dunda mér við að lesa bókina Vonin blíð eftir William Heinesen, en mamma benti mér réttilega á að það væri lélegt að vera að fara til Færeyja og hafa ekki lesið neitt eftir Færeyskan rithöfund.

Barátta um yfirráð…skilaboð! Ég á

Thursday, June 27th, 2002

Barátta um yfirráð…skilaboð!

Ég á í stöðugri baráttu um yfirráð og aðgengi að garðinum mínum við köngulær. Köngulærnar í garðinum eru algjörir snillingar í að búa til vefi sem blokkera allar helstu aðkomur að garðinum. Þær eru líka hrikalega þrautseigar og virðast láta það lítið á sig fá þótt ég skemmi vefina þeirra, jafnvel nokkrum sinnum á dag.

Mér er samt frekar vel við köngulær. Þær hafa t.d. þann stóra kost að veiða flugur. En mér finnst bara að þær ættu frekar að gera vefina sína á öðrum stöðu. Þá á ég við runna, tré og þannig hluti, ekki tröppur og dyraop.

Ef þú sem lest þetta ert könguló, bið ég þig vinsamlegast um að taka þetta till greina eða koma skilaboðunum áleiðis til vina þinna.

Nesti og nýjir skór Ég

Wednesday, June 26th, 2002

Nesti og nýjir skór

Ég fór með Stebba í morgun upp í Kringlu. Þar keyptum við nýja skó á hann, gönguskó til að geta þrammað um Færeyjar án þess að blotna í fæturna ef það rignir. Ég held að það sé óþarfi að kaupa líka sandala.

Nú er bara spurning hvort við tökum líka með okkur nesti. Ég verð að bera það undir hann næst þegar ég hitti hann!

Leiðrétting og kaffihúsarýni Steina-hleðslan sem

Tuesday, June 25th, 2002

Leiðrétting og kaffihúsarýni

Steina-hleðslan sem mig langar að skoða er víst ekki Olav-kirke heldur Magnus-katedralen. Olav-kirke er við hliðina og virðist bara vera venjuleg íslensk sveitakirkja. Magnus-katedralen er einnig kallaður því skemmtilega nafni Múrurin og var byggður um 1300 en var aldrei kláraður. Það var var Erlendur biskub sem lét byggja hann. Erlendur lagði miklar efnahagslegar byrðar á Færeyinga að á endanum leiddi það til blóðugra uppþota og það er hugsanleg skýring á því að Múrurin er ófullgerður.

***

Annars fórum við Stebbi áðan og fengum okkur að borða á Caffé Kúltúre. Smáréttamatseðillinn þar er mjög spennandi og matarmeiri réttirnir virðast ekki síðri. Við fengum okkur grillaðan þorsk með Mandioca. Þjónninn var ekki alveg viss um það hvaðan maturinn væri ættaður ,en spurði kokkinn fyrir okkur og kom til baka með svarið “Angóla”. Þetta var með betri fiskréttum sem ég hef smakkað en líka mjög öðruvísi, því maturinn var bragðmikill og gerði mun meiri kröfur til bragðlaukanna en ég á að venjast, sérstaklega með fisk. Svo var það nú ekki til að spilla ánægjunni að maturinn þarna er á mjög góðu verði. Ég mæli því eindreigið með því að fólk prufi að borða í Alþjóðahúsinu.

Byrjuð að drekka í mig

Tuesday, June 25th, 2002

Byrjuð að drekka í mig fróðleik…

Áðan fór ég í Mál og Menningu og keypti Turen gaar til Færöerne (ég hef ekki en komist að því hvernig ég geri bollu a eða danskt ö). Þetta er massa bók eða það vona ég.
Ég er strax búin að finna einn stað sem mig langar að skoða. Það er Olav-kirke, sem er i sem er Kirkeböur. Það virðist vera voða fín kirkja. Annars er ég ekki neitt sérlega hrifin af því að skoða kirkjur, finnst þær yfirleitt minna mig á eymd og volæði og skelfilegar aðstæður vesalings fólksinis sem þurfti að byggja þær.

Það sem ég heillar mig við Olav-kirke er að hún er hlaðin úr steinum, en ég er að verða mikil áhugamanneskja um hlaðna hluti. Mér finnst t.d. Fiskbyrgin, sem eru við Gufuskála (og líka á fleiri stöðum á Snæfellsnesi) alveg frábær. Svo finnst mér vörður og dysjar líka mjög spennandi. Ég mæli með því að ef fólk veit ekki hvað það á að gera við frítíma sinn fari það í sunnudagsbíltúr um Snæfellsnes og stoppi til að skoða Fiskbyrgin.

En núna eru vinkonur mínar sem eru að reyna að læra smá ensku komnar og ég verð að sinna þeim.

Blóð og sviti Ég er

Monday, June 24th, 2002

Blóð og sviti

Ég er búin að hamast eins og brjálæðingur núna í morgun á óræktinni í garðinum með handknúnu slátturvélinni sem ég fann í útlgeymslunni minni. Þetta var ekki vonlaust verk en mjög erfitt og núna er ég búin að verða mér úti um líkamsrækt sem ætti að duga fyrir alla vikuna og slatta af blöðrum á hendurnar. Ég hef samt smá áhyggjur af því að ég hafi ekki slegið grasið neitt sérlega vel, heldur aðallega bælt það niður. Það kemur í ljós þegar ég nenni að raka.

***

Annars er ég að koma út úr ansi ljúfri helgi. Ég fót í útskriftarveislu hjá Guðmundi, sem ég hafði aldrei hitt áður en hafði séð í sjónvarpinu á sínum tíma, í Gettu betur. Hann bauð upp á dýrindis lambakjöt og ég held að ég sé ekkert að ýkja þó ég segi að ég hafi sjaldan fengið jafn gott kjöt. Frá Gvendi lá leiðin til Kjartans. Þar var einnig boðið upp á ljúffengar veitingar en ég gat því miður ekki borðað neitt sérlega mikið af þeim, enda vel södd eftir allt lambakjötsátið. Amma Kjartans er frábær. Hún er fótbolta áhugamanneskja fram í fingurgóma og hefur bara misst af einum leik á HM.

***

Annars styttist í það að ég fari í sumarfrí til Færeyja. Við byrjuðum í gær að gera gróft plan yfir ferðalagið, það er að segja þann hluta ferðalagsins sem er á Íslandi. Við ætlum að taka okkur smá tíma í að keyra austur en á bakaleiðinni ætlum við að stoppa smá heima í Neskaupstað og bruna svo í einni lotu í bæinn. Næst er svo að plana Færeyjar sjálfar. Það getum við samt ekki gert fyrr en við verðum búin að kaupa okkur bók um eyjarnar. Ég hugsa að við látum bara nægja að kaupa Turen gaar til bók. Dönum hlýtur að vera treystandi til að skrifa um Færeyjar. Lonly planet bækurnar eru rosalega góðar en bókin um Færeyjar er líka um Ísland og Grænland og kaflinn um Færeyjar er frekar stuttur. Allavega efast ég stórlega um að hann sé tæplega 4000 kr. virði.

Klúðrað blogginu í morgun! Ég

Friday, June 21st, 2002

Klúðrað blogginu í morgun!

Ég var búin að skrifa alveg helling í dag en þá fór allt í steik. Ég hafði þó næga sjálfstjórn til að sparka ekki í tölvuna og slökkti bara á henni í staðinn og fór að heimsækja Hrönn í Þjóðarbókhlöðuna. Við fengum okkur hádegismat og ræddum m.a. mannréttindamál í Bandaríkjunum.

Síðan fór ég með bílinn í smurningu, þvoði hann og skrapp nipur í Tryggingarstofnun.

Annars missti ég af morgunpartýi í morgun. Ég steinsvaf það af mér. Ég vona bara að gestirnir hafi skemmt sér.

Bú rúmp ú rúmp

Friday, June 21st, 2002

Bú rúmp ú rúmp

Mér leiðist! Ég vaknaði kl.

Thursday, June 20th, 2002

Mér leiðist!

Ég vaknaði kl. 8 í morgun og síðan þá hef ég ekki gert neitt gáfulegt. Ekki einu sinni farið að sofa aftur. Reyndar kveikti ég á hádegisfréttunum en ég nennti bara ekki almeninlega að hlusta á þær.
Ég las Fréttablaðið, það tók ekki langan tíma. Enda hafði ég hvorki áhuga á fréttunum né slúðrinu. Ég fletti samt samviskusamlega í gegnum allt blaðið. Síðan hélt ég áfram að lesa unglingabókina sem ég byrjaði að lesa í gær. Ég vildi bara vera viss um að hlutirnir sem mér fannst slæmir þegar ég var fjórtán væru í lavörunni slæmir. Þeir voru það en ég held að ég sé samt orðin rómantískari en ég var þá. Stefán getur þó vottað að rómantíkin hjá mér er nú ekki beint neitt til að hrópa húrra fyrir.

***

Núna ætti ég að manna mig upp og fara með bílinn minn á smurstöð. Svo gæti ég líka skroppið upp í Tryggingarstofnun og fengið nokkra hluti á hreint. Ef ég gerði þetta myndi mér ekki leiðast. Þá þarf ég því miður bara að fara út og hitta fólk…
…en ég nenni því ekki. Ég er viss um að það myndi bíta mig.

***

Ég vildi að Nonni væri í landi. Þá gæti ég barmað mér við hann!

Fylgdist með serímóníunni á 17.

Tuesday, June 18th, 2002

Fylgdist með serímóníunni á 17. júní í gær…

…og vona að ég geri það ekki aftur í bráð.

Í gærkvöldi nenntum við ekki niður í bæ því það var svo mikið rok. Börðumst aftur á móti með storminn í fangið út í sjoppu og leigðum okkur vídeóspólu og keyptum okkur samlokur. Þegar við höfðum fokið aftur heim beit ég í mína og fannst hún frekar skrítin. Hún var útrunnin! Á eftir ætla ég að fara og skila spólunni og kvarta í leiðinni.

Síðan ætla ég að fara upp í Þjóðarbókhlöðu og hitta Hrönn. Hún var rekin af 3. hæðinni og upp á þá 4. því það er verið að þvo teppin. Spáiði í örlögum: Læra í bókhlöðunni á veturna og vinna þar á sumrin. Hún er samt bráðum að hætta hjá honum Gunnari sínum. Hver á þá að hugsa um blómin hans? Mér hefur skilist að Steinþór hafi aldrei náð svo langt í metorðastiganum hjá Gunnari Karlssyni að hann hafi fengið það mikla ábyrgðarhlutverk að vökva blóminn, hvað þá að aðstoða við að umpotta!