Fjallið

July 15th, 2008

Ég skil ekkert í þvottafjallinu að brjóta sig ekki saman og hunskast inn í skáp.

Hangs

June 11th, 2008

Eftir dæmalaust hangs morgunsins erum við Erving nú sest út í sólina og mun hann eiga athygli mína óskipta þar til ég sæki barnið í leikskólann.

Það vill þó til að í öllu hangsinu í morgun hitti ég fullt af skemmtilegu fólki.

Skrifstofan

June 3rd, 2008

Ja nú held ég að ég sé flott á því. Flutti í morgun inn í skrifstofu Stefáns í Reykjavíkurakademíunni og sótti einnig um aðild að akademíunni. Ég kunni nú bara ekki við annað fyrst ég ætla að fara að hanga þarna í sumar og vonandi líka haust. Við ætlum semsagt að tvímenna hér.
Byrjaði náttúrulega á að umsnúa skrifstofunni - ég bara skil ekki hvernig hægt er að sitja með bakið í dyrnar - og sortera og koma fyrir stöflum af greinum. Og svo náttúrulega að blogga um herlegheitin.

Svo þarf ég að ákveða hvert ég eigi að fara í hádegismat. Stærsti kosturinn við að vera með skrifstofu er náttúrlega að þá getur maður farið í mat eins og fín kona.

Með þessu áframhaldi get ég byrjað að skrifa MA ritgerð um næstu mánaðarmót.

Dularfulla kartöfluhvarfið

June 2nd, 2008

Þegar ég ætlaði að fara að sjóða kartöflur með mánudagsfiskinum var eins og ísskápurinn hefði gleypt þær. Eftir mikla leit fundust þær svo í frystihólfinu. Það er greinilega varasamt að ganga frá matvöru annarshugar.

* * *

Garðurinn er að breytast úr illgresisplantekru í drullusvað - sem er gott.

Datt

May 30th, 2008
  • á magann á Laugarveginum. Held að það hafi ekki verið sérlega virðulegt. Annars er langt síðan ég hef dottið svona á nánast rennisléttu undirlagi.

* * *

Vatnspyntingar kl. 17 á Austurvelli. Held nú að ég leggi ekki í að prufa bekkinn sjálf.

Þá stórt er spurt

May 29th, 2008

Af hverju er svona erfitt að koma sér að verki?

Og raunar má líka bæta annarri spurningu við:

Af hverju er ekkert girnilegt til að borða í skápunum mínum?

Það eru ekki alltaf jólin

May 29th, 2008

En öðru máli gegnir greinilega um páskana.

Ég fann mjög óvænt eitt lítið páskaegg lengst uppi í skáp. Það rann sérdeilis ljúflega niður með morgunkaffinu.

Eldhúsdagsumræður

May 27th, 2008

Mikið svakalega var ég ánægð með ræðu Árna Þórs Sigurðssonar. Og af því að ég er í ferkar góðu skapi í kvöld er ég að hugsa um að vera bara líka ánægð með ræðu Guðfinnu Bjarnadóttur. Ekki vegna þess að ég sé sammála henni - ég held reyndar að ég hafi ekki verið sammála neinu sem hún sagði - heldur vegna þess að ég bara trúi ekki öðru en að vitiborið og skynsamt fólk sjái hvað frjálshyggjan sem hún boðar er galin og þar með stefna flokksins sem hún talar fyrir.

Júróvisjon hvað?

May 25th, 2008

Ég vissi ekki að ég væri svona góð í norsku. Og það er sko ekki leiðinlegt að eyða seinniparti laugardagskvölds í að spjalla við offíser í norska Hjálpræðishernum. MS - ráðstefnan var hinsvegar ekki alveg nógu áhugaverð. Sjáum til hvort ég nenni að mæta í fyrramálið. Mér finnst ég allavega verða að mæta til að kveðja nýju norsku vini mína.

Hreinsað út

May 23rd, 2008

Mér finnst þær flottar konurnar sem mættu í dómsmálaráðuneytið í hádeginu.