500

December 30th, 2008

Á netmogganum var haft eftir löggunni að 200 manns hefðu mætt í Palestínu-mótmælin á Lækjartorgi.

Vísir og fréttastofa Bylgjunnar gerðu það sérstaklega að umfjöllunarefni að Össur Skarphéðinsson hefði mætt.

Ég sá ekki Össur og gekk þó hring í kringum mannfjöldann til að kanna hljóðburðinn (var að róta). Það eitt segir mér að það voru mun fleiri en 200 á svæðinu.

Ætli 500 hafi ekki verið nær lagi?

Tilvitnun - gáta

December 29th, 2008

Eftirfarandi tilvitnun í kunnan fagurkera er frá árinu 1974. Hver er maðurinn og hverju mótmælti hann svo kröftuglega?

Þetta dæmalausa plagg Iýsir betur en flest annað þeim yfirgangi smekkleysunnar, sem íslensk börn eru beitt, hvort heldur er með slíkri furðusendingu eða með forheimskuðum skrípamyndum sjónvarpsins í barnatímum, eða þeim bíómyndum, sem kallaðar  eru  barnasýningar.
Aðilar þeir, sem að slíku standa, virðast hafa það sameiginlega álit á börnum, að afkáraskapurinn sé þeim helst til skemmtunar, flatneskjan best til skilnings og listrænt menningarleysi þeim öruggast til uppdráttar.

Börn kunna að meta góða teikningu, þau eru býsna glögg á það, sem er vandað og fallega gert. Því er það grætilegt, að opinberir aðilar skuli finna sig knúða til að senda þeim slíka andlega sjálfsmynd sína og það að sýnist í algjöru tilgangsleysi.
… Það vill til, að mörg hafa lagt þennan undarlega jólaglaðning til hliðar með hreinu ógeði.

Getur einhver útskýrt…

December 28th, 2008

…hvaða lógík getur verið í því að tappa vatni á flöskur í Vestmannaeyjum og selja úr landi?

Í ljósi þess að vatninu er dælt frá fastalandinu til Eyja, þá getur þetta varla verið hagkvæmt? Af hverju ekki að tappa þessu í það minnsta á flöskurnar uppá landi?

Kvef & fótbolti

December 28th, 2008

Allt í volli á Mánagötu. Við Steinunn höfum legið í bælinu með andstyggilegt kvef í allan dag. Það þarf mikið að breytast í nótt til að ég komist í vinnuna á morgun.

Sendum grísinn í sund með ömmu sinni og afa. Það féll í kramið, enda barnið líklega sárfegið að yfirgefa pestarbælið.

Um fjögurleytið dröslaðist ég innan úr rúmi og fram í stofu, þar sem ég sá Framara taka Hauka í nefið í deildarbikarnum. Viggó er að gera virkilega góða hluti með þetta Framlið. Það kemur þægilega á óvart.

Jafnframt lá ég á netinu og fylgdist með framvindu mála hjá Luton og Lincoln. Chris Martin (lánsmaður frá Norwich) skoraði tvisvar og hjassinn geðþekki, Ian Roper, skoraði annan leikinn í röð. Lincoln minnkaði muninn í 3:2 undir lokin, en þrjú dýrmæt stig í höfn.

Núna er mótið hálfnað, 23 umferðir búnar af 46. Luton er komið í mínus eitt stig (byrjuðum með þrjátíu í mínus). Það er undir settu marki - en ekki þó svo ýkja fjarri því sem þarf til að halda sér uppi.

Bournemouth er með sjö stig - átta stigum meira en við. Þeir byrjuðu með sautján stig í mínus. Það þýðir að okkur hefur bara tekist að saxa á forskot þeirra um fimm stig af þrettán. Hins vegar er allt í steik utanvallar hjá Bournemouth og ekki útilokað að þeir lendi í frekari refsingum vegna fjármálaóreiðu.

Grimsby er með fjórtán stig. Við höfum því minnkað forskot þeirra um helming. Stjóraskipti virðast ekki hafa gagnast Grimsby-mönnum, en Mike gamli Newell er við stjórnvölinn þar núna.

Barnet skipti um stjóra nú um helgina. Þeir unnu Bournemouth í dag og eru komnir í nítján stig. Accrington Stanley sigraði Grimsby og komst í 22 stig. Chester er með 23. Öll þessi lið sigla því tiltölulega lygnan sjó, en geta dregist oní fallbaráttuna á skömmum tíma.

Næsti leikur er úti gegn Chester, laugardaginn þriðja janúar. Þá verður líka búið að opna félagaskiptagluggann, sem mun hafa í för með sér talsverðar breytingar á liðskipan margra liða sem treysta á lánsmenn úr efri deildunum. T.d. bíða Luton-menn spenntir eftir að sjá hvort Leicester fær framlengt lánið á markverðinum sínum frá Liverpool. Ef það gengur eftir, þá eru meiri líkur á að Leicester leyfi okkur að halda Conrad Logan út tímabilið.

Af utandeildarkeppninni er það markverðast að Burton Albion er langefst á toppnum og mun væntanlega leika í deildarkeppninni á næsta ári í fyrsta sinn í sögunni. Það er ekki hvað síst áhugavert vegna þess að Burton er með ungan stjóra, sem þó hefur verið við stjórnvölinn hjá liðinu í mörg ár - Nigel Clough! Það skyldi þó aldrei fara svo að Clough yngri taki við Nottingham Forest innan nokkurra ára?

Fjölnota bombur

December 28th, 2008

Aðalauglýsingatrixið í flugeldasölubransanum í ár er víst sprengiterta með skopmyndum af útrásarvíkingum. Fólk er þannig hvatt til að tjá andúð sína (reikna ég með) á þessum kónum með því að puðra þeim upp.

Þetta er kúnstugt ef haft er í huga upphaf þess að byrjað var að setja skopmyndir af stjórnmálamönnum á rakettur. Þá voru myndir eftir Sigmund af ráðherrum ríkisstjórnarinnar settar á flugelda. Síðar urðu þetta forystumenn stjórnmálaflokkanna - jafnt stjórnarliða sem stjórnarandstæðinga.

Sá var þó munurinn að á þeim árum voru menn hvattir til að skjóta upp “sínum manni”. Framsóknarmenn áttu að kaupa Steingrím Hermannsson, Sjálfstæðismenn Albert.

Núna virðast tívolíbombur hins vegar hafa öðlast fjölþættara menningarlegt hlutverk. Þær má nota mönnum bæði til lofs og lasts. Skrítið.

# # # # # # # # # # # # #

Rétt í þessu var ég að klára að lesa skáldsögu í striklotu. Og það helv.flotta bók.

Meira um það á nýju ári.

Borgað inn á höfuðstól

December 27th, 2008

Ráðgjafar um heimilisfjármál spretta upp eins og gorkúlur. Margt í boðskapnum þeirra verður seint talið eldflaugavísindi - s.s. ráðleggingar þess efnis að reyna að losa sig við yfirdráttin og helst að nota kreditkortið sem minnst.

Jújú…

Annað sem fjármálaráðgjafarnir leggja áherslu á, er að maður reyni að borga e-ð lítilræði til viðbótar inná höfuðatól lána við hverja afborgun.

Gott og vel - nú er að koma að afborgun á Annuitets-Íbúðasjóðsláni heimilisins og því um að gera að taka fjármálamógúlana á orðinu. Nema hvað - ég sé ekki að það sé hægt að breyta upphæðinni á greiðsluseðlinum í netbankanum til að hækka upphæðina. Er hægt að redda þessu í gegnum tölvu að heiman eða verð ég að mæta í örtröðina í bankanum á gjalddaga? Því nenni ég fjandakornið varla…

Middlesborough

December 26th, 2008

Ég er oft spurður hvort ég haldi ekki með einhverju liði í ensku úrvalsdeildinni - svona til hliðar við Luton.

Menn verða yfirleitt frekar tortryggnir þegar ég neita því.

Og raunar er það ekki alveg svo einfalt. Þessar vikurnar held ég t.d. með Middlesborough. Við erum nefnilega með fantagóðan senter í láni frá þeim - og því slappari sem Boro-menn eru, þeim mun meiri líkur eru að á kauði verði kallaður aftur heim.

Craddock skoraði einmitt fyrir okkur í dag í 2:2 jafntefli gegn Chesterfield á útivelli.

Jöfnunarmark okkar kom á 96. mínútu. Það skoraði fituhjassinn Ian Roper, sem hefur öðlast sérkennilegan cult-status meðal stuðningsmannanna.

Sex leikir í röð án taps er ekki slæmt - en þar af eru raunar fjögur jafntefli og einn sigur í skúnka-bikarkeppni. Nú verða einhverjir sigrar að fara að koma í hús.

Ef íslenska Wikipedian ætlar að ná máli…

December 26th, 2008

…þá verður hún að koma upp síðum um mikilsverðustu atriði íslenskrar sjónvarpssögu. Hér vantar síður um:

* Áramótaskaup (höfundar, leikarar, helstu einkenni)

* Stundina okkar (umsjónarmenn, -tuskudýr)

* Jóladagatalið (höfundar, leikarar, sýningarár)

* Tónlistarþætti (Skonrokk, Poppkorn - ár, umsjónarfólk)

* Lista yfir stakar íslenskar sjónvarpsþáttaseríur (hvenær var “Þeytingur” sýndur - hver sá um hann?)

Nú þarf einhver góður maður að verða við kallinu og byrja að skrá…

Skugga-Jólasveinn

December 25th, 2008

Pistillinn minn á Smugunni fjallar um jólasveina.

Jájá.

Guðjón, ekki klúðra þessu!

December 24th, 2008

Hver hefði trúað því miðað við stjóraferil Guðjóns Þórðarsonar síðustu misserin að hann ætti eftir að fá annað tækifæri í enska boltanum?

Crewe Alexandra er merkilegt lið sem nýtur talsverðrar virðingar á Bretlandseyjum. Félagið er frægt fyrir að hafa náð árangri umfram stærð, með því að sníða sér alltaf stakk eftir vexti og hegða sér skynsamlega í leikmannakaupum.

Fyrir vikið hefur Crewe í margra huga verið fyrirmynd margra minni liða - sönnun þess að það sé hægt að þrauka sem sardína innan um hákarlana.

Það verður því fylgst grannt með því hvernig Guðjóni tekst upp í nýja djobbinu. Ekki kúðra þessu - orðspor okkar er víst nógu slæmt fyrir í Englandi…