Handbolti/fótbolti
Sígilt umfjöllunarefni á enskum fótboltanördasíðum eru listar yfir menn sem náðu að vera bæði afreksmenn í fótbolta og krikket. Ian Botham er eitt þekktasta dæmið.
Samsvarandi úttekt á Íslandi væri um þá menn sem náð hafa árangri í fótbolta og handbolta. Á upphafsárum íslenska handboltans voru flestir handknattleiksmenn jafnframt í fótboltanum. Með tímanum jókst sérhæfingin – auk þess sem einstök félög einbeittu sér að ólíkum greinum. Haukar og FH voru löngum öflug í handbolta en léleg í fótbolta. KR hefur lengst af verið slappt í handboltanum og sama gildir um Skagamenn.
(Ath.: Þessi umfjöllun vísar bara í karlaboltann. Það er auðvitað fullt af dæmum í kvennaflokknum.)
Framarar eiga líklega flesta einstaklinga sem orðið hafa Íslandsmeistarar í báðum íþróttunum. Allnokkrir hafa náð landsleikjum í bæði handbolta og fótbolta. Ásgeir heitinn Elíasson var t.d. í fótboltanum í Fram og handboltanum í ÍR. Gaman væri að sjá lista yfir þá menn sem náð hafa þeim árangri.
Páll Ólafsson er líklega síðasti maðurinn sem náð hefur að leika A-landsleik í bæði handbolta og fótbolta. Það verður varla gert úr þessu.
Róbert Gunnarsson handboltakappi lék í næstefstu deild í meistaraflokki í fótbolta og er líklega það næsta sem við komumst því í seinni tíð að sjá menn ná árangri í báðum greinum.
Willum Þór Þórsson hefur þjálfað meistaraflokk í bæði handbolta og fótbolta.
Hvert skyldi vera nýjasta dæmið um leikmann sem náð hefur að spila í efstu deild í handknattleik og knattpsyrnu á Íslandi? Jón Kristjánsson Valsari og KA-maður? Spyr sá sem ekki veit.

September 10th, 2011 at 23:17
Jón og Erlingur bróðir hans eru seinustu dæmin sem ég veit konkret að spiluðu í efstu deildum í báðum íþróttum en Gunnleifur Gunnleifs var ágætis handboltaleikmaður og var m.a. í 21 árs liðinu. En hvort að hann náði að spila leik í efstu deild man ég hreinlega ekki.
September 10th, 2011 at 23:26
Ég held að Jón Erling Ragnarsson FH-ingur (og Framari) verði að teljast afreksmaður í báðum greinum. Hann var mikill markaskorari í fótboltanum og lét U 21 leiki í báðum íþróttagreinunum ef ég man rétt.
Hitt er annað að ég geri mér ekki grein fyrir því hvort hann var á ferli á eftir þeim Kristjánssonum enum Akureyrsku.
September 10th, 2011 at 23:27
Ef ég man rétt spiluðu bæði Anton Bjarnason og Ásgeir Elíasson landsleiki í þremur boltaíþróttum, annar hand- fót- og körfubolta og hinn handbolta, fóbolta og blak.
September 10th, 2011 at 23:34
Landsliðsþjálfarinn okkar fráfarandi hefur líka þjálfað meistaraflokkslið hvort tveggja í handbolta og fótbolta. Hann þjálfaði handboltalið ÍA í byrjun níunda áratugarins, þegar það ágæta lið náði svo hátt sem í 2. deild en var oftast í 3. deild ef ég man rétt. (Þetta var auðvitað á þeim tíma þegar deildir nefndust réttum nöfnum og 1. deild var toppurinn á tilverunni.)
September 11th, 2011 at 04:57
Þið eruð að gleyma Hemma Gunn. sem á að ég held markametið í handboltalandsleik, á 3 hæð í USA. Einnig held ég að Sigurbergur Sigsteins hafi spilað í báðum greinum.
September 11th, 2011 at 15:40
Ht man ekki rétt. Anton spilaði blak, körfu og fótboltalandsleiki en Ásgeir blak, handbolta og fótbolta.
September 12th, 2011 at 09:13
Úff, elliglöpin farin að herja á mann…
September 12th, 2011 at 11:53
Erlingur Kristjánsson varð Íslandsmeistari bæði í handbolta og fótbolta með KA og var í báðum tilfellum fyrirliði liðanna. Það held ég nú að verði seint toppað. Páll Viðar Gíslason lék árum saman bæði fótbolta og handbolta fyrir Þór á Akureyri og var burðarás í báðum liðum. Svo minnir mig að Ólafur Sigurjónsson (Óli Zico) hafi leikið bæði handbolta og fótbolta með ÍR, en sennilega ekki í efstu deild í fótboltanum samt.
September 17th, 2011 at 13:41
Sverrir Garðarsson hefur bæði spilað handbolta og fótbolta með FH
November 5th, 2011 at 17:37
Hörður Felixsson og Þorbjörn Friðriksson urðu bæði meistarar með KR í knattspyrnu og Handbolta.Má ekki gleyma Gunnari Gíslasyni bróðir Alfreðs sem var bæði í Knattspyrnu og Handbolta eins Stefáni Arnaldssyni þjálfara kvennaliðs Vals í handbolta.Eflaust margir fleirri.
June 1st, 2012 at 11:57
Ég steingleymdi þeim eðla Þórsara Heiðmari Felixssyni. Hann lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki Þórs 16 ára, árið 1993 og lék þá 9 leiki. Ég æfði fótbolta með Heidda og hann var alveg gríðarlega góður, a.m.k. jafn góður og í handboltanum