Spámaðurinn mikli
Eins og dyggir lesendur þessarar síðu ættu að vita, er ég mikill og nánast óbrigðull spámaður. Til að árétta það ætla ég að setja fram djarfan spádóm:
Í tilefni af framlagningu álagningarskránna munu ungir Sjálfstæðismenn efna til einhverra táknrænna mótmæla, sem fjórir munu mæta á. Þeir munu líklega hóta því að stela skránum eða hindra fólk í að blaða í þeim. Þeir munu hins vegar ekki nenna því lengur en í svona þrjú kortér, klukkutíma og fara þá heim.
Þetta mun þó tryggja þeim a.m.k. eitt sjónvarpsviðtal, tvö útvarpsviðtöl og smástúf í Mogganum.
Já - ég veit að þetta er djarfur spádómur, en ég er jú maður hinna djörfu spádóma.
* * *
Og meðan ég man - þar sem ég er hvorki Pressu- né Eyju-bloggari, mun ég líklega ekki rata inn á neinn lista yfir tekjur celeb-bloggara. Það er því best að upplýsa það hérna að ég borga 1,4 milljónir í skatt. Þið verðið sjálf að reikna út hvað það gerir á mánuði.

July 28th, 2010 at 15:09
Þú vildir ekki verða Eyjubloggari
Jafnvel þó við segðum þér að þú værir efstur á óskalistanum og dekstruðum fram og tilbaka.
Ég tel annars að spádómurinn muni rætast. Núverandi formaður er mikill frjálshyggjumaður. Minnir að Sus-ararnir hafi ekki nennt þessu í fyrra.
July 28th, 2010 at 15:20
Stefán, þú verður nú að leyfa Heimdellingum að hafa sína Keflavíkurgöngu.
p.s. stundum eru nú formenn félagasamtaka einnig nefndir.
July 28th, 2010 at 15:36
Puðrast nú kaldhæðnin úr blogginu þegar minnst er á Keflavíkurgöngu.
July 28th, 2010 at 17:03
En ekki gleyma því að Björk Guðmunds greiðir ekki skatta á Íslandi.
Nauðsynlegar staðreyndir í orkumálunum…. sem Sjálfstæðismenn gripu á lofti en misstu af kaldhæðninni.
July 28th, 2010 at 21:39
Hmmm, ég myndi nú í þínum sporum ekki vera að flagga spádómsgáfunni mikið. Þó svo að ég útiloki ekki að þessi frumlega spá þín geti ræstststst.