Vík milli vina
Sé að Orðið á götunni flytur æsilega fregn af skylmingum okkar Proppé hér á síðunni.
Ekki átti ég nú von á því að svona orðahnippingar myndu duga í slúðurmola. Hélt að allir vissu að við Kolbeinn jögumst í hvor öðrum eins og gömul hjón á þessu bloggi - jafnvel oft í viku.

February 5th, 2010 at 14:53
Úff já. Hvað ætli mundi gerast ef þeir kæmust í msn-samskipti okkar!
February 5th, 2010 at 16:16
Það að þú ert í vörn er jafnvel grunsamlegra en ef þú hefði þagað.
February 6th, 2010 at 08:55
Athyglisverðar deilur um fréttaflutning.
Hvorki er Fréttablaðið góður fjölmiðill eða Stefán góður rýnir.
Umfjöllun um þetta hús er með ólíkindum og þá sérstaklega skoðun Stefáns. Hún er sú sama og maður sér hjá “verndarpólitíkum” gamalla húsa í miðbænum. Það er eins og ekki megi breyta neinu húsi þar, bæta eða rífa. Jafnvel handónýt hús. Þau skulu öll standa og helst ekki mála þau eða hýsa aðra starfsemi en safnakost. Eða standa auð. Júú… það má breyta póstum, gluggum og jafnvel leggja tofþak á þau..! Þessi pólitík og skoðanir verndarsinna hafa gengið svo langt að miðbærinn er einsog slömm. Mannlífið þar er lítið sem ekkert og mörg hús að hruni komin vegna þess að ekki má rífa þau eða byggja ný því það það hentar ekki skoðunum manna einsog Stefáns.
Hvað rök í ósköpunum hefur þú fyrir því að vilja ekki hótel í þetta hús….önnur en þau að þetta sé “eitt af fimm fallegustu húsinum í bænum”!