Hótelið

Sú hugmynd að breyta gömlu heilsuverndarstöðinni í hótel er gengin aftur. Ekki veit ég hverjir eigendur hússins eru nú, en þeir eiga augljóslega greiða leið á síður Fréttablaðsins. Í dag birtist mikil frétt um hversu frábært þetta hótelverkefni sé og hversu mikilvægt það sé að knýja það í gegn með miklum hraða.

Ekki eru margar vikur frá því að Fréttablaðið skrifaði nokkrar fréttir í röð um hversu æðisleg áform væru uppi um að stofna einkarekinn grunnskóla í húsinu. Skipuleggjendur þess verkefnis vildu einmitt líka fá flýtiafgreiðslu í kerfinu. Seinna kom svo í ljós að skólastofnunin átti öllu lengra í land en stofnendurnir vildu vera láta.

Heilsuverndarstöðin er eitt af fimm flottustu húsunum í Reykjavík. Fyrir nokkrum árum stóð til að setja upp mikla sýningu í byggingunni um sögu heilbrigðismála í Reykjavík. Ég var fenginn til að koma að verkinu sem fulltrúi Orkuveitunnar og skoðaði þá húsið hátt og lágt að innan. Þar uppgötvaði ég að byggingin er ekki síður glæsileg að innan en utan.

Ef Heilsuverndarstöðinni verður breytt í hótel ætla ég rétt að vona að menn beri gæfu til að halda innviðum hússins með mest er unnt í stað þess að sópa öllu innan úr því. Því miður er tónninn í aðstandendum framkvæmdarinnar í Fbl. í dag nokkuð á hinn veginn. Þar er áherslan lögð á framkvæmdahraða og að engan tíma megi missa að senda iðnaðarmenn á svæðið með kúbein. Slíkt yrði mikið tjón.

7 Responses to “Hótelið”

  1. kolbeinn Says:

    Þú hefur furðulegan skilning á fréttum og í raun óskijlanlegan. Það að það þyki fréttnæmt hvað gera á við “eitt af fimm flottustu húsunum í Reykjavík” eins og þú kallar það, er fráleitt að túlka sem frétt um hversu frábært það verkefni er.

    Og ekki skil ég hvernig þér tekst að lesa það úr fréttum um nýjan skóla sem stofna átti í þessu húsi - að blaðamönnum finnist sú hugmynd æðisleg. Ég skrifaði margar fréttir um það og skil ekki hvað þú ert að fara með svona bulli.

    Þarna fellur þú í þá gryfju að líta svo á að með umfjöllun um eitthvað sem þér hugnist ekki sé tekin afstaða með framkvæmdinni. Fráleit hugsun.

  2. Stefán Says:

    Auðvitað er þetta fréttnæmt, enda amast ég ekki við því að um málið sé fjallað.

    En eins og þú þekkir mætavel sem blaðamaður og maður með reynslu af sveitastjórnarmálum, þá hafa framkvæmdaaðilar oft talsverða hagsmuni af fréttaflutningi og það er ansi algengt að framkvæmdaaðilarnir byrji á að fara í fjölmiðla og kynna þar frábæru verkefnin sín sem muni skapa vinnu og hagsæld - til að skapa pressu áður en bankað er uppá hjá yfirvöldum. Í þessari frétt leggur framkvæmdaaðilinn mikla áherslu á að öll leyfi verði að berast helst samstundis.

    Einkaskólinn sem átti að opna í húsinu notaði sömu tækni. Fyrst var farið í nóg af viðtölum og lýst dásemdum þessarar nýju skólastefnu (sem var eflaust voða fín) og svo rætt um hversu mörg börn hefðu verið skráð nú þegar í skólann og margítrekað að hann myndi taka til starfa í haust. Á sama tíma átti eftir að afla allra leyfa - en reynt var að ýta því áfram með því að búa til pressu, m.a. með fjölmiðlaumfjöllun.

    Ég held að það sé ekki hægt að neita því að Fréttablaðið sýndi þessum skóla meiri athygli en aðrir fjölmiðlar. Þar birtust vissulega fréttir sem spurðu gagnrýnna spurninga, en aðrar (einkum helgarviðtöl) voru fyrst og fremst halelújasöngur.

  3. kolbeinn Says:

    Nú vill svo til að ég veit hvernig þessi frétt varð til. Blaðamaður flettir fundargerðum og rekst á áhugavert mál. Hann býr til úr því frétt, enda er málið hið fréttnæmasta. Ég þykist fullviss um að þeir sem hafa hug á rekstrinum þarna eru engan veginn ánægðir með þennan fréttaflutning. Heldur hefðu þeir líklega viljað vinna að málinu í friði frá kastljósi fjölmiðla.

    Hið sama var uppi á teningnum með fréttirnar um skólann. Rekstraraðilar þar voru mjög fúlir yfir okkar fréttaflutningi og vildu lítið við okkur tala. Það varð að ganga á eftir þeim til að fá komment og iðulega neituðu þeir að tjá sig.

    Því ólíkt því sem þú virðist halda þá felst okkar starf ekki í því að bíða eftir framkvæmdaraðilum sem koma að kynna frábæru verkefnin sín. Meðal þess sem við gerum er að lesa fundargerðir til að sjá hvort þar séu áhugaverð mál.

    Þú ert s.s. að segja að eftir að hafa séð þetta í fundargerð hefðir þú hugsað, hmmm þetta er augljóslega ekki fréttnæmt þar sem húsið er svo sögufrægt að ég vil ekki að þarna sé hótel, umfram allt má ekki vera asi á verkefninu.

    Fundargerð skipulagsráðs 3. febrúar 2010.

    “4. Barónsstígur 47, (fsp) breyta í hótel (01.193.101) Mál nr. BN040980
    710304-3350 Álftavatn ehf, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
    Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. jan. 2010. Spurt er hvort leyft verði að innrétta húsnæði áður Heilsuverndarstöð Reykjavíkur sem hótel fyrir Icelandair Hótel á lóðinni nr. 47 við Barónsstíg. Málinu fylgir bréf fyrirspyrjanda dags. 21. janúar 2010.
    Frestað”

  4. Stefán Says:

    Það birtist heilsíðuviðtal við aðstandendur skólans sem stilltu sér glaðbeittir upp og útlistuðu hugmyndafræðina. Um svipað leyti var svo sérstaklega fjallað um Ólaf Stefánsson og þátt hans í verkefninu. Ertu að segja að þetta hafi verið í óþökk aðstandendanna?

    Ég hef auðvitað engar forsendur til að meta hvernig þetta hótelmál bar að á blaðinu. En varðandi skólann, þá er alveg ljóst að stofnendur hans reyndu að spila með fjölmiðla og tókst að talsverðu (en ekki öllu) leyti. Hvort þeir hafi orðið súrir ef þeir fengu einhverjar spurningar sem voru þeim ekki að skapi er svo annað mál. Vona að svo hafi verið.

  5. kolbeinn Says:

    “Ég hef auðvitað engar forsendur til að meta hvernig þetta hótelmál bar að á blaðinu.”

    Ja ekki nema þær að ég sagði þér hvernig það bar til. Ef þú trúir ekki því sem ég segi og heldur að ég sé að ljúga að þér er lítil ástæða til að ræða málin áfram.

  6. H. Lilliendahl Says:

    LEMD’ANN Í KRULLURNAR, KOLBEINN!

  7. Torfi Stefán Says:

    Legg til að Stefán fái lygamælinn hans Ásbjörns Ottósonar og noti hann á Kolbein.

Leave a Reply