SIðblinda eða heimska?

Ég get ekki alveg gert upp við mig hvort Halldór Ásgrímsson sé siðblindur eða heimskur, miðað við viðtalið á Rás 2 í morgun.

Það var erfitt að skilja hann öðruvísi en að stuðningurinn við innrásina í Írak hafi verið sjálfsagður og eðlilegur á sínum tíma, enda Bandaríkjamenn og Bretar þá miklir vinir okkar og til mikils að vinna að halda þeim góðum. Í dag myndi hann hins vegar ekki skrifa upp á svona innrás - enda hefðu Bandaríkjamenn lokað herstöðinni í Keflavík og Bretarnir píni okkur til að borga okurvexti.

Með öðrum orðum: ef Kaninn væri enn að lufsast hér með 4-6 herþotur væri fyrrum formaður Framsóknarflokksins meira en til í að klappa fyrir næsta árásarstríði þeirra. Spurningin er bara hvað Icesave-vextirnir þyrftu að vera lágir til að HÁ veitti breskum stjórnvöldum syndaaflausn til að sprengja í loft upp fátækt fólk í fjarlægum löndum.

Eru engin takmörk fyrir lágkúru þessa manns?

16 Responses to “SIðblinda eða heimska?”

  1. Geir Says:

    þetta er svo mikið hyski.

  2. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Þessi heift fer þér illa nafni. Þú ert á þeirri skoðun að stríð sé aldrei réttlætanlegt. Halldór er augsýnilega á þeirri skoðun að stríð geti verið réttlætanlegt. Það gera reyndar allir alþjóðasáttmálar ráð fyrir að svo sé. Þú talar um að sprengja í loft upp fátækt fólk. Hann talar um að koma einræðisherra frá völdum. Báðir hafa eitthvað til síns máls. En þú kýst hins vegar að taka orð Halldórs úr samhengi vegna þess að þú vilt að það sem hann segir passi við þá hryllingsmynd sem þú hefur af honum.

    Vertu ósammála ef þú vilt. En þú getur ekki sakað Halldór um að vera að fela neitt. Ég á svolítið erfitt með að skilja hvað þessi rannsókn á tildrögum Íraksstríðsins ætti að leiða í ljós sem ekki er löngu vitað. Halldór hefur a.m.k. ekki legið á upplýsingum um þessa ákvörðun.

    Þó það sé auðvitað fínt fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð og Samfylkinguna að stofna til tilgangslausrar rannsóknar til að reyna að beina athyglinni frá sínu eigin misheppnaða hjónabandi en það held ég að sé ekki brýnasta úrlausnarefni okkar í dag.

    Og svo ættir þú kannski að hugleiða að skrifa einu sinni um þann mann sem tók þessa ákvörðun og hefur aldrei viljað tjá sig neitt um hana og mætir sannarlega ekki í viðtöl til að upplýsa þjóðina eins og Halldór er þó að gera.

  3. Stefán Says:

    Ég er svo sem bara að ræða um þetta tiltekna viðtal nafni - þar sem Halldór segir berum orðum að stuðningur eða andstaða okkar við stríðsrekstur af þessu tagi eigi að byggjast á því hvort við teljum Breta og Bandaríkjamenn eiga eitthvað inni hjá okkur - ekki málsatvikum.

    Finnst þér það í alvöru talað ekki makalaus afstaða þegar kemur að því að taka afstöðu til stríðs?

    Ekki þar fyrir að þetta er sama línan og Morgunblaðið tók á sínum tíma. Þar sagði Reykjavíkurbréf að Íraksstríðið væri feigðarflan, en við skulduðum Bandaríkjamönnum að styðja stríðin þeirra. Held að Sjálfstæðismenn hafi svosem fengið skammirnar líka frá mér í gegnum tíðina.

  4. Elías Halldór Ágústsson Says:

    “Halló elskan, ég var að selja rússnesku mafíunni börnin.”

    “Heyrðu, ég upplýsti þig um þetta með eðlilegum hætti, ég átta mig ekki á því út á hvað þessi rannsókn á að ganga.”

  5. Elías Halldór Ágústsson Says:

    Halldór og Davíð eru einfaldlega stríðsglæpamenn og ættu að dúsa restina af sinni sorrý æfi í fangelsi.

  6. kolbeinn Says:

    “En þú getur ekki sakað Halldór um að vera að fela neitt.”

    Athyglisverð setning í ljósi leynigagna og tregðu til að upplýsa á hvaða gögnum ákvörðunin var tekin á sínum tíma.

  7. Jóhannes Laxdal Says:

    Afhverju var ekki Halldór spurður því Utanríkisnefnd þingsins hefði ekki fjallað um þennan “greiða” tvímenninganna við glæponinn G.W.Bush jr.?
    Halldór hefur alltaf virkað á mig sem frekar mikill einfeldningur og hrokagikkur en það fer víst oft saman

  8. Sigurður Þór Guðjonsson Says:

    Það fórust víst 100 þúsund Íraka í stríðinu. Saddam var orðinn gamal maður og hefði varla tekist að sálga jafn mörgum það sem hann hefði átt eftir ólifað. Þetta finnst mönnum víst þess virði ef hægt er að borga stórveldum einhvern stuðning eða greiða.

  9. Ómar Harðarson Says:

    Eg myndi segja siðblinda. Aðspurður sagði hann að málið hefði verið rætt á Alþingi og utanríkismálanefnd. Stjórnarandstaðan hefði bara viljað ræða málið meira. Hann gleymdi að geta þess og spyrill var ekki nógu vel að sér til að þráspyrja, að öll þessi umræða fór ekki fram fyrir eftir kosningar 2003, þegar leynimakkið þeirra Davíðs hafði komið í ljós.

    Þá hélt hann áfram hálfsannleiknum um að Saddam hefði verið þekktur fyrir að hafa notað gereyðingarvopn gegn eigin löndum og stríðið því réttlætanlegt. Ekki skal ég gera lítið úr efnavopnum og allra síst beitingu þeirra gagnvart almenningi, en það er nokkur munur á þeim og kjarnorkuvopnum á SCUD flaugum sem áttu að vera tilefni innrásarinnar.

  10. Sjöfn Kristjánsdóttir Says:

    Er ekki alveg til í málinu að siðblindur maður sé heimskur og öfugt?

  11. Steinunn Says:

    http://eyjan.is/blog/2010/02/02/frasogn-halldors-asgrimssonar-um-studning-vid-iraksstrid-stemma-ekki-vid-ummaeli-embaettismanna/

    Halldór mætir vissulega í viðtöl, en það er ekki hægt að gefa honum prik fyrir það ef að hann greinir ekki rétt frá. Nema þetta sé allt Davíð að kenna og Halldór hafi aldrei spurt hann útí þennan lista… Líklegt?

    Halldóri var enginn greiði gerður af Rás 2, sem endurspilaði þennan bút úr viðtalinu (sem Stebbi bloggar um) í allan dag.

    Talandi um brýnustu úrlausnarefnin í dag, þá er rót þessa máls sú sama og rót vandans sem við erum að glíma við í dag. Nefnilega valdhroki, hagsmunapot og siðleysi. Rannsókn á stuðningnum við Íraksstríðið er rökrétt framhald af rannsókninni á bankahruninni og stóru spurningunni: hvernig komust örfáir menn upp með að fífla okkur trekk í trekk?

  12. Benedikt G. Waage Says:

    Ég legg það til að ríkisstjórnin borgi undir þessa tvo til Íraks þar sem þeir munu ferðast um landið og kynna rök þau er þeir notuðu þegar þeir ákváðu að styðja stríðsreksturinn. Held að hinn almenni Íraki hefði gaman af að heyra vel ígrunduð rök kappanna og sömuleiðis hljóta þeir að vera ánægðir að fá að útskýra mál sitt fyrir heimamönnum.

  13. Sigurjón Says:

    Rannsökum þetta allt og komumst að því að ákvörðunin var röng eins og enginn deilir lengur um. Fjármálaráðherrann getur þá talað eitthvað lengur um hvað það sé erfitt og slítandi að þrífa skítinn eftir aðra. Gott fyrir hann. Stefán getur bloggað eitthvað lengur um hversu mikið hann hatar Halldór Ásgrímsson. Gott fyrir hann líka. En saklaust fólk mun áfram verða drepið af eigin yfirvöldum eða eigin samlöndum út um allan heim - með eða án aðstoðar eða afskipta viljugra eða óviljugra þjóða. Ekki gott fyrir það - en það verður a.m.k. óbreytt. Og öllum er raunverulega sama.

  14. hildigunnur Says:

    Benedikt, góð hugmynd atarna! Sigurjón, uh nei það er nefnilega ekki alveg öllum sama.

  15. Arnar Says:

    Halda menn virkilega að það sé tilviljun að þessi hugmynd að rannsókn kemur upp núna? Ef það er þannig að menn telji það forgangsmál akkúrat núna að rannsaka þessa ákvörðun fyrir að verða átta árum þá þeir um það. Ég held að við ættum fyrst að rannsaka hluti sem standa okkur nær í tíma, af nógu er þar að taka.

  16. Toggi Says:

    Auðvitað ekki tilviljun.

    Auðvitað hefði tillaga um rannsókn aldrei komið úr stjórnaflokkum meðan D eða B voru þar innanborðs.

    Auðvitað þýðingarlaust að leggja fram svona tillögu í stjórnarandstöðu. (En mig hálfminnir að það hafi nú verið gert samt)

    Og auðvitað eðlilegt að þetta hafi ekki verið forgangsmál á fyrstu mánuðum núverandi stjórnar.

    Og auðvitað nauðsynlegt að þetta verði gert.

Leave a Reply