Krípí
Sögunni um styttuna af Tómasi Guðmundssyni virðist ætla að ljúka. Kannski rennur nú upp nýtt tímabil líkneskjugerðar. Hver kemur næst í stytturöðinni?
Verðlaunatillagan sýnir Tómas sitjandi á bekk. Þetta er dæmi um hugmynd sem er voða sniðug á pappír, en verður eiginlega bara krípí í praxís.
Eins og stytturnar uppi við Hallgrímskirkju. Alveg sama hversu oft maður labbaði fram hjá þeim, alltaf kipptist maður við þegar stikað var yfir holtið að næturlagi (jafnvel eftir 2-3 bjóra). Legg til að einhver vaskur borgarstarfsmaður verði settur í að drösla Tómasar-styttunni inn í hús á hverju kvöldi til að skáldið hræði ekki líftóruna úr nátthröfnum.

January 24th, 2010 at 20:16
Labbaði? Er bílisminn kominn á það stig að þú ert bara alveg hættur að ganga?
January 24th, 2010 at 21:14
Ég hef nú séð svipaðar styttur í útlöndum og þykir þær alveg ágætar margar hverjar. Ég er því barasta ljómandi kátur með þetta og gæti í raun ekki verið meira sama þó fyllibyttum helganna verði brugðið að sjá borgarskáldið sitjandi á bekk í framtíðinni.