Réttu mér þá nagla og spýtur, Jónas!
Jónas Kristjánsson svarar færslu minni um kirkjur og málefni byggingarfulltrúa í Egyptalandi. Svar Jónasar er á þessa leið:
Stefán smíði kirkjuna
Stefán Pálsson herstöðvaandstæðingur fer rangt með, þegar hann segir kristna Kopta fá að byggja kirkjur í Egyptalandi. Leitaðu Stefán á Google að “egypt koptic church building permit”. Reyndu svo að reisa þar kirkju. Koptar eiga þvert á móti afar erfitt með að fá slík leyfi. Ríkið skammtar örfá leyfi til kirkjubygginga, seint og illa. Þau nægja ekki til að leysa af hólmi kirkjur, sem hrynja eða eru rifnar til að rýma fyrir nýjum húsum. Ennfremur brennir fólk og rífur nýbyggðar kirkjur. Samt er Kopta-kristni frumtrú í landinu. Útilokað er fyrir aðra kristna söfnuði að fá að byggja kirkjur þar í landi.
Svo mörg voru þau orð.
Að sjálfsögðu hlýddi ég Jónasi og sló inn umbeðnum leitarorðum á Google. Þá kom þessi niðurstaða í ljós.
Það er fróðlegt að renna yfir þessar heimildir sem Jónas telur taka af allan vafa í málinu. Drjúgur hluti er (skilanlega) fréttaveitur koptískra kirkjudeilda í Bandaríkjunum. Safaríkustu frásagnirnar eru þó af síðum sem heita: Christianpost.com og (efsta heimildin) Rightsidenews.com - sem hefur undirfyrirsögnina “The Right News for America”. Endilega kynnið ykkur þann… tja, athyglisverða vef.
Mín heimild um stöðu trúfrelsismála í Egyptalandi er hins vegar hin árlega mannréttindaskýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins (2008 útgáfan), en þar er hvert land tekið fyrir og meðal annars fjallað ítarlega um réttindi trúarhópa. Sjá hér. Ég stend því við hvert orð í síðustu færslu.
Gaman væri að vita hvað blaðamennskukennarinn Jónas segði á námskeiðum sínum um val á heimildum. Hvorum er hollara að trúa: embættismönnum bandaríska utanríkisráðuneytisins eða blaðamönnum á hægrinöttaravefriti?

December 10th, 2009 at 21:41
Fróðlegt að lesa skýrslu sömu aðila um Ísland: “The long-pending application to the Reykjavik city planning commission for land to build a mosque encountered further delay late in the year”
December 10th, 2009 at 22:16
Og verðlauninn fyrir skemmtilegustu fyrirsögnina á bloggfærslu árið 2009 fær Stebbi Páls!
December 10th, 2009 at 22:37
Hvernig nennirðu þessu? Jónas hefur aldrei rangt fyrir sér.
December 11th, 2009 at 00:35
Áhugaverð vefsíða! sem þú bendir á: “The Right News for America”. Nú skil eg betur skrif Jónasar um Barack Obama.
December 11th, 2009 at 10:36
aumingja Jónas
December 11th, 2009 at 12:13
Verð að viðurkenna að ég sé ekki hvernig Jónas getur haft rangt fyrir sér eftir lestur þessarar skýrslu þinnar. Sé ekki betur en að það sé “nánast” útilokað fyrir kristinn minnihluta að byggja og jafnvel gera upp kirkjur í Egyptalandi. Þó að til sé glufa um þetta í Egypskum lögum þarf það alls ekki að þýða að farið sé eftir þeim, við sem höfum verið búsett í vanþróaðri löndum kringlunnar vitum vel að þó eitthvað sé leyfilegt samkvæmt lögum þarf það alls ekki að þýða að það sé leyfilegt.
Verð þó að viðurkenna það að ég hef nú samt gaman af því að fylgjast úr fjarska með ritdeilu tveggja heimakærra Íslendinga um trúfrelsi í Egyptalandi, beitandi fyrir sig sinni hvorri bandarísku heimildinni beint af Google.
Einnig finnst mér það skipta eilitlu máli að svissneska ákvörðunin var tekin eftir lýðræðislega þjóðaratkvæðisgreiðslu, sem þú Stefán hefur sjálfur sagst vera mikill aðdáandi að en sú Egypska ekki. Er ekki smá munur þar á?
December 11th, 2009 at 12:38
Nei nafni - það er ekki hægt að skilja þessa skýrslu á þennan hátt. Í henni kemur nokkuð skýrt fram að löggjöfin sé viðunandi, en að á nokkrum svæðum (alls ekki í landinu öllu) séu brögð að því að héraðsstjórnir sniðgangi hana. Reyndar er kúnstugt að borgarstjórnin í Reykjavík fái sömu skammir frá bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Annars kannast ég ekki við að hafa verið sérstaklega að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna í Sviss (þótt aðrir hafi kosið að gera það í athugasemdakerfinu), því síður að ég telji Egypta umburðarlyndari í trúmálum en t.d. Svisslendinga.
Málið snýst einfaldlega um það að ritstjórinn skorinorði staðhæfði að það væri bannað að byggja kirkjur í Egyptalandi - sem var einstaklega klaufaleg staðhæfing í ljósi þess að í landinu búa milljónir kristinna manna. Þar eru þúsundir kirkna - gamlar jafnt sem nýjar. Um það má hæglega lesa á fjölda vefsíðna.
Ef Jónas Kristjánsson væri eini maðurinn sem hefði haldið þessu fram um að kirkjubyggingar séu bannaðar í gjörvöllum hinum íslamska heimi - þá nennti maður varla að fetta fingur út í það. Hins vegar er þessi staðhæfing algeng í umræðunni hérna heima og það án þess að menn nenni neitt að kynna sér málin. Menn hafa bara óljósar hugmyndir um stöðu mála í Sádi-Arabíu og Íran… og finnst að þetta sé nú allt sama tóbakið.
Sem er fyndið í ljósi þess hvað menn urðu móðgaðir út í Egypta þegar þeir rugluðu saman Norðurlöndunum í Múhameðsteikningamálinu og sáu ekki mun á Dönum og Norðmönnum…
December 11th, 2009 at 13:48
Hárétt hjá þér Stefán, eftirá að hyggja var þetta fullglannaleg fullyrðing hjá Jónasi.