Hver var að ljósrita?

Fyrir margt löngu rifjaði ég upp gamla sögu úr Alþýðubandalaginu frá landsfundi þar sem einn armurinn í flokknum var búinn að setja saman lyfseðil með leiðbeiningum um hverja skyldi kjósa og hverjum að sleppa í einhverju miðstjórnarkjörinu. Ekki vildi betur til en svo að sá sem tók að sér að fjölfalda miðann - sem fara skyldi með eins og mannsmorð - gleymdi frumritinu í ljósritunarvélinni og allt varð vitlaust.

(Auðvitað klúðraði ég svo öllum smáatriðunum í sögunni - hver var að verki, hver fann miðann o.s.frv…)

Þessi saga rifjast óneitanlega upp við lestur Fréttablaðsins í dag af  “stundatöflu” stjórnarandstöðunnar - sem er búin að raða niður á sig andsvörum við ófluttum ræðum. Vissulega er þetta til marks um óvenjumikla hugkvæmni, en að stundataflan hafi farið á flakk og endað loks í höndunum á blaðamanni Fréttablaðsins er megaklúður.

Var Margrét Tryggvadóttir nokkuð sett á ljósritunarvélina?

5 Responses to “Hver var að ljósrita?”

  1. helga Says:

    Birgitta er líklegust

  2. Andrés Magnússon Says:

    Það er líka gamalt trikk að skilja eitthvað eftir í ljósritunarvélinni sem ósagða hótun. Einn kunningi minn skildi þannig CV-ið sitt ávallt eftir í ljósritunarvélinni skömmu fyrir launaviðtal.

    Stjórnarandstaðan kynni að vilja senda skilaboð um að hún væri til í að ræða málið út í ystu æsar fram yfir áramót ef því væri að skipta.

  3. Þóra systir Says:

    Þetta var Birgitta heillin - hún var víst rænd…
    http://www.dv.is/frettir/2009/12/3/birgitta-segist-hafa-verid-raend-althingi/

  4. helga Says:

    Svei mér þá!
    http://www.dv.is/frettir/2009/12/3/birgitta-segist-hafa-verid-raend-althingi/

  5. Flosi Says:

    Sá að Bjarni Ben treystir sér ekki til að hafa skoðun á því hvort þetta framfæri stjórnarandstöðunnar sé innan þingskaparlaga og ber við reynsluleysi í Vísi: ,,Spurður hvort hann telji að það sé í anda þingskapalaga að ákveða að veita andsvör við ræðu sem ekki hafi heyrst, segir Bjarni: „Þú verður að tala við einhverja þingreyndari menn um það en mig.”"

    Það hafa verið svo miklar breytingar á þingi undanfarnar þrennar kosningar að BB er að verða með reyndari mönnum en hann var kosinn 2003, þeir sem eru þingreyndari en hann eru:

    Ásta Ragnheiður, Einar K., Jóhanna, Jón Bjarna, Kristján Möller, Pétur Blöndal, Siv Friðleifs, Steingrímur J., Þorgerður Katrín, Þórunn Sveinbjarnar, Þuríður Backmann, Ögmundur og Össur!

    Aðeins þrír eru úr Sjálfstæðisflokknum, og einn úr framsókn, Það er því svo að stjórnarflokkarnir virðast ráða yfir mikið þingreyndara fólki sem ábyggilega eru reiðubúin að leiðbeina Bjarna, þar eru þau fremst í flokki, Jóhanna og Steingrímur. Væri ekki best að Bjarni spyrði bara þau !

Leave a Reply