Til sjónvarps? (b)
Önnur umferð aðalhluta ensku bikarkeppninnar er leikin um helgina. Í dag lék Luton við Rotherham á útivelli - strembinn leikur gegn liði sem er á góðu róli einni deild ofar.
Náðum 2:2 jafntefli og tryggðum okkur þannig heimaleik, væntanlega annan miðvikudag. Það kvöld verða þessar viðureignir:
Millwall : Staines
Stockport : Torquay
Barnet : Accrington
Barrow : Oxford
Aldershot : Tranmere
Luton : Rotherham
Við fyrstu sýn hlýtur viðureignin okkar að vera sú álitlegasta fyrir ITV þegar kemur að því að velja sjónvarpsleik. Það ætti að koma i ljós á morgun, skömmu áður en dregið verður í þriðju umferð. Þá er bara að krossa fingur…
Millwall v Staines
Stockport v Torquay
Barnet v Accrington
Barrow v Oxford
Aldershot v Tranmere
Luton v Rotherham

November 28th, 2009 at 21:52
vá. spurning um að fara setja “b” í nafnið á þessu bloggi.
November 28th, 2009 at 23:51
Annaðhvort “grannarslagur” Millwall v Staines MASSIVE eða Luton v Rotherham sem koma til greina. Ég mun allavega vita hverja við fáum á meðan við rúllum upp Cardiff city klukkan 15 á morgun.
November 29th, 2009 at 23:04
Mér sýnist nú Millwall v. Staines vera borðleggjandi í þessum efnum. Grannaslagur og Staines þvílíkir “underdogs” - að landsmenn allir* (enskir)
myndu gleðjast ef þeir færu áfram.
*fyrir utan brjálæðingana sem styðja Millwall.
November 29th, 2009 at 23:29
ITV sýndi fyrri leik Staines og Millwall - svo það er kannski full mikið að taka báða.
Annars gerðu Kettering og Leeds jafntefli, svo líklega er sjónvarpsleikurinn ráðinn.
December 3rd, 2009 at 09:26
Kettering - Leeds er spennandi fyrir okkur United menn.
Fáum heimaleik og annað hvort mætum við smáliði sem þarf allan þann fjárhagslega stuðning sem leikur á OT getur gefið þeim með skiptingunni á miðasölu. Nú eða þá við mætum Kettering.