Joe Jordan, Henry & dómur sögunnar
Það er enn talsverður hiti í mörgum yfir svindlmarki Frakka gegn Írum á miðvikudaginn. Helst er að skilja á sumum bloggurum að knattspyrnan verði aldrei aftur söm. Bogi Ágústsson þvaðraði um það í útvarpinu að ferill Henrys væri ónýtur og að nafn hans yrði hér eftir að eilífu tengt þessu atviki. Aðrir láta eins og svartur skuggi hafi fallið á HM-þátttöku Frakka.
Þvættingur! - Spyrjiði bara Joe Jordan.
1978 sendu Skotar besta landslið sitt síðustu fimmtíu ár á HM í Argentínu. Að margra mati voru þeir kandídatar í að vinna keppnina og miðað við mannskapinn var það ekkert fráleitt heldur. Allir Skotar dásama þetta lið. Ekkert myndbrot hefur verið sýnt oftar í sjónvarpi þar í landi en Archie Gemmill að skora mark mótsins á móti Brasilíu (sbr. fræga vísun í Trainspotting).
Á sama hátt og Skotar eru stoltir af þessu liði sínu og gráta titilinn sem rann þeim úr greipum, er þeim nákvæmlega sama um hvernig liðið komst á HM. Það var einmitt með svindli Joe Jordans.
Wales og Skotland börðust um farseðilinn til Suður-Afríku. Allt stefndi í að Wales hefði betur, en þá sló Jordan knöttinn með hendinni í vítateig andstæðinganna, nærsýnn dómari taldi að einn úr liði andstæðinganna hefði rétt fram krumluna og dæmdi víti. Jordan fór sjálfur á punktinn, skoraði og fagnaði með því að kyssa á sér hnúann.
Enn í dag eru allir Walesverjar fjúríös út í fólið Jordan. Skotum finnst sagan bara fyndin. Og þeir einu sem kunna frá málinu að segja utan þessarra tveggja þjóða eru fáeinir fótboltasögunördar.
Svona verður þetta líka með atvikið á miðvikudaginn. Írar munu ekki fyrirgefa þetta næstu 40 árin (þeir eru reyndar þjóð sem er sérlega dugleg í langrækni), Frakkar eru bara hressir og allir aðrir verða búnir að gleyma málinu á mettíma.

November 20th, 2009 at 23:35
Já, nema hvað Skotar spiluðu ekki við Brasilíu 1978. Meinarðu Holland?
November 20th, 2009 at 23:46
Þetta átti að sjálfsögðu að vera Holland.
November 21st, 2009 at 00:03
Minni á ómark Englendinga gegn Vestur-Þjóðverjum 1966. Í úrslitaleik! Liðið mitt beið þar ósigur gegn aumingjunum frá Englandi, með svindli. Fengum það reyndar til baka með víti gegn Argentínu 1990.
November 21st, 2009 at 00:05
Téð ómark
http://www.youtube.com/watch?v=__MJV11nRqU&feature=related
November 21st, 2009 at 04:23
Börðust þeir ekki um farseðilinn til Argentínu 1978?
November 21st, 2009 at 07:53
Frakkar eru nú mishressir með þetta. Maðurinn minn æjaði og veinaði og sagði að Írar hefðu átt skilið að vinna leikinn, ekki bara út af ómarkinu, bara spiluðu betur. Og umræðan gengur mikið út á að Henry skuli vera svartur…
November 21st, 2009 at 14:44
Þessi grein er ekki merkt með (b) þrátt fyrir að vera fótboltatengd.
Ég gerði því þau mistök að lesa fótboltagrein. Mér er bumbult frændi.
November 21st, 2009 at 20:50
Þetta er bara hin dæmigerða og margsannaða írska heppni !!