Irn-Bru
Skotland er eitt fárra vestrænna samfélaga þar sem Kóka kóla er ekki vinsælasti gosdrykkurinn. Þess í stað drekka flestir Irn-Bru, sem er appelsínudrykkur - nánast eins og vont Egils appelsín.
Saga drykksins er sú að hann var í fyrstu seldur undir heitinu Iron Brew. Þá kom í ljós að einhverjir útlendingar höfðu skrásett það vörumerki.
Skotarnir dóu ekki ráðalausir. Þeir breyttu nafninu í Irn-Bru… sem var klárlega nýtt og óskrásett vörumerki - en sagt með skoskum framburði þá hljómaði það nákvæmlega eins og gamla nafnið. Sneddý.
+ + +
Núna heitir viðskiptabankinn minn ekki lengur Kaupþing heldur Airon Bank - sem verður að sjálfsögðu Æron bank með íslenskum framburði.
Járnbankinn lætur til sín taka!

November 20th, 2009 at 22:25
Það var víst Arion Bank …
November 20th, 2009 at 22:35
…sem verður þá Ari Jón skv. íslenskum framburði sbr. http://baggalutur.is/skrif.php?id=1681
November 20th, 2009 at 23:41
Þessi banki er búinn að skipta svo ört um nafn á síðust uárum að það er engin leið að henda reiður á því hvað hann heitir hverju sinni. Ég ætla að halda áfram að kalla hann Búnaðarbanka.
November 21st, 2009 at 00:04
Rebus þambar drykkinn, og ég var alltaf að velta því fyrir mér hvað þetta væri eiginlega. Takk fyrir að svara þeirri spurningu!
November 23rd, 2009 at 09:45
Þessi blessaði drykkur er algjör viðbjóður, svona hálfpartinn eins og vont tyggjó á bragðið finnst mér
November 23rd, 2009 at 14:32
Löndin þar sem Coca-Cola er ekki vinsælasti gosdrykkurinn eru reyndar sárafá. Gott ef Skotland og Perú eru ekki þau einu í seinni tíð. Í Perú hefur Inca Kola enn yfirhöndina, viðbjóðslegur gulur drykkur sem bragðast eins og tyggigúmmí. Coca-Cola Company reyndi áratugum saman að ná markaðsyfirráðum, en án árangurs. Svo fór því að lokum, einhvern tímann á tíunda áratugnum, að þeir keyptu meirihluta í Inca Kola.
November 28th, 2009 at 00:29
If you can’t beat them, join them…