Voru þeir að lesa Moggavefinn?
Það var furðuleg uppákoma í gær þegar formaður og fv. formaður Framsóknarflokksins gengu á fund forsætisráðherra til að flytja þær stórfréttir að Per Olaf Lundteigen, þingmaður á norska stórþinginu vilji lána Íslendingum svimandi upphæðir.
Þetta þóttu mönnum mikil tíðindi…
…það er, þeim mönnum sem ekki muna fréttir stundinni lengur.
Þeir sem fylgdust með fréttum af lánamálum Íslands nú í sumar, voru ekki jafn hissa. Enda sagði fréttavefur Morgunblaðsins frá þessari afstöðu Per Olafs Lundteigens um miðjan ágústmánuð!!!!! Um það má einmitt lesa hér.
Voru kannski Sigmundur og Höskuldur að gúggla á netinu og römbuðu inn á sex vikna gamla Moggafrétt og hugsuðu: “Hey, skyldi þetta líka hafa farið framhjá Jóhönnu?” - stukku svo upp í jeppann og reykspóluðu af stað?

October 1st, 2009 at 18:48
Já en sko…sko…
Nei ég ætla ekki einu sinni að reyna þetta. Ég er með bjánahroll.
October 1st, 2009 at 20:25
Þetta er ekkert skemmtilegt fólk þessir bakkabræður þarna.
October 1st, 2009 at 20:39
Heyrði Höskuldur þetta á barnum? Hann fór ekki einu sinni rétt með nafnið á Norðmanninum!
Höskuldur kallaði hann í sjónvarpinu í gær LundSteigen, en Norðmaðurinn heitir Lundteigen.
“Hey, Sigmundur! Hann ætlar að redda okkur 2000 milljörðum þessi þarna Ole… Lund…. Steigen!”
October 1st, 2009 at 21:36
Þeir eru þó að reyna að finna leiðir.. sem er meira en þinn formaður og þitt ædol eru að gera.
Ömmi hröklast burt frá vandanum “eeehhh ég er stuðningsmður en nei.. en styð ríkisstjórnina eehhhh en bara svo ég getir sagt nei við icesave sko”
Guðfríður Lilja… “já sko mmmm nei sko …. ég get ekki sagt efnislega og svona lýðræðislegar aðferðir og svona.. sko”
Vinstri græn eru einsog krakkar sem eru að gera prakkarastrik…..
Gerð þú þetta ….
æj nei gerðu þú þetta…
nei ég … alltaf ég … gerð þú þetta…
Það er feitur niðurskurður í vændum… þið viljið skera en ekki halda á hnífnum! svei ykkur
October 1st, 2009 at 22:45
Já Guðjón! Svo er Luton lélegt lið og Stebbi með allt of mikið hár! Svei honum!
October 2nd, 2009 at 00:24
Það er ekki vitað hvað þeir voru að gera í stjórnarráðinu. Þeir töluðu ekki við Jóhönnu.
October 2nd, 2009 at 06:56
Bakkabræðurnir Sigmundur og Höskuldur eru farnir að haga sér oftar og oftar eins og öskurapar… Liggur við að maður sé farin að “sakna” eldri framsóknarleiðtoga….
October 2nd, 2009 at 17:43
Viðbót: http://lundteigen.origo.no/-/bulletin/show/390230_island-trenger-norsk-statslaan – þetta var upphaflega heimildin.