Archive for August, 2009

Sónninn

Sunday, August 30th, 2009

Ég á við hvimleitt vandamál að stríða. Spurning hvort hinir ljónskörpu lesendur þessarar síðu geti komið til aðstoðar?

Hér á Mánagötunni eru þrjár íbúðir. Ein í kjallara, við á miðhæðinni og efri hæðin hjá Siggu og Benedikt. Upp á síðkastið hefur farið að bera á leiðinlegum són - einsleitu og háu hljóði sem varir frá 4-5 sekúndum og upp í svona hálfa mínútu í senn. Hljóðið berst úr þeim hluta íbúðarinnar þar sem baðherbergið er (baðherbergin í íbúðunum þremur eru hvert ofan á öðru). Það er erfitt að átta sig á því hvaðan það berst nákvæmlega. Það kemur ekki úr blöndunartækjum, heldur virðist frekar vera innan úr veggjunum eða úr loftinu. Í kjallaranum heyrist ekki neitt. Við heyrum ágætlega í þessu en á efstu hæðinni er hávaðinn mjög mikill og Sigga farin að slökkva á heyrnartækinu sínu vegna þessa.

Svo virðist sem hljóðið hafi byrjað að láta á sér kræla í vor en verður stöðugt tíðara og hærra. Það er mest á kvöldin, en lætur minna bera á sér yfir miðjan daginn. Á kvöldin er nánast hægt að kalla það fram að vild með því að skrúfa frá krönum og/eða sturta niður. Að deginum lætur það ekki eins vel að stjórn.

Okkur datt í hug að þetta gæti verið afleiðing af millirennsli milli heits og kalds vatns - en píparinn sem kom í heimsókn í dag (þegar ekkert heyrðist) sagði að um slíkt gæti varla verið að ræða, þar sem blöndunartækin væru ekki sjóðheit eins og þegar slíkt gerðist.

Hver djöfullinn getur eiginlega verið á ferðinn?

Stefánslögmálið

Sunday, August 30th, 2009

Verkefni fyrir menntamálaráðherra

Saturday, August 29th, 2009

Rauði fáninn

Saturday, August 29th, 2009

Matseðillinn

Friday, August 28th, 2009

Gosbrunnurinn?

Wednesday, August 26th, 2009

Stefán Group

Wednesday, August 26th, 2009

9 dagar

Tuesday, August 25th, 2009

Jón Baldvin & verðtryggingin

Monday, August 24th, 2009

Dómarinn (b)

Monday, August 24th, 2009