Smár?
Nú er ég loksins farinn að fíla mig eins og alvöru bókarhöfund.
Frambókin er sem sagt loksins komin á Borgarbókasafnið í almenn útlán (eftir að hafa verið í óratíma í „frágangi“). Þetta þýðir að núna fer ég í tíma og ótíma inná Gegni og fylgist með…
Og sjá! Nú þegar eru tvö eintök úti!
# # # # # # # # # # # # #
Fyrsti Fréttablaðsleiðarinn minn birtist í morgun. Það verður eflaust skemmtilegt að takast á við þetta form.

July 10th, 2009 at 23:14
Til hamingju með þetta
Annars var ég að fatta að Fram mun spila við Sigma Olomouc - við bóndinn, ásamt heilum stúlknakór gistum fyrir 3 vikum á hóteli við hliðina á heimavelli þeirra og gengum á hverjum degi gegn um svæðið til að komast á kóramótstaðinn - íþróttahöll staðarins.
Maður verður eiginlega að mæta á leikinn…
July 11th, 2009 at 21:26
Þrjár núna. Varð að taka hana til að sjá hvernig yrði tekið á tveimur skrautlegustu Íslandsmeistaratitlum sögunnar. Og auðvitað Pétursmálinu.
En í alvöru talað. Þá lítur þetta út fyrir að vera hin ágætasta bók, þó með þeim fyrirvara að ég er rétt byrjaður að glugga í hana.
July 12th, 2009 at 23:11
Ég er byrjaður að glugga í bókina, og hún er virkilega skemmtileg lesning, góð blanda af fræðslu og skemmtun…
July 13th, 2009 at 11:39
Ábending um réttu aðferðina til að setja inn varanlegan tengil á rit í Gegni:
Þetta er sótt í hjálpartexta á gegnir.is
Ef vefslóð úr leit í Gegni er afrituð þá verður hún óvirk því hún inniheldur “session ID” sem rennur út eftir stuttan tíma.
——————————————–
Hvernig tengja má við tiltekið rit á gegnir.is
Heiti rits
1. Byrjið á að fletta upp kerfisnúmeri verksins sem tengja á við, til dæmis “Kveðjuvalsinn”. Í fullri færslu skal velja að skoða Marksnið og er þá kerfisnúmerið þar í neðstu línu auðkennt með fyrirsögninni SYS, sem í þessu tilviki er 000230186.
2. Tengillinn fyrir bókina “Kveðjuvalsinn” lítur þá svona út: <a href=’http://gegnir.is/F?func=find-a&find_code=SYS&request=000230186′>Kveðjuvalsinn
3. Prófið: Kveðjuvalsinn