Hayes vs. Bush
Morris, höfundur bókanna um Lukku Láka, dó árið 2001. Eftir hann lágu þá sjötíu bækur um Lukku Láka - auk hliðarverkefna, s.s. allnokkrar bækur um ævintýri heimska hundsins Rattata.
Eftir fráfall meistarans hafa þrjár bækur komið út til viðbótar, þar sem félagarnir Achdé og Gerra semja og teikna. Þessar nýju bækur eru fínar og gefa verkum forverans ekkert eftir. Reyndar eru þær betri en sumar af nýjustu Morris-bókunum, sem voru farnar að verða endurtekningasamar.
Lukku Láki er bestur þegar plottið hefur sagnfræðilegar vísanir, enda er til mikill litteratúr um sögulegar vísanir í bókunum. Nýjasta Lukku Láka-bókin, Maðurinn frá Washington (L´Homme de Washington) er sérstaklega velheppnuð í þessu tilliti.
Í bókinni gerist Lukku Láki fylgdarmaður Rutherfords B. Hayes í baráttunni að verða frambjóðandi Repúblikana í forsetakosningunum 1876. Andstæðingur Hayes í kosningabaráttunni er hinn ófyrirleitni Perry Camby frá Texas - sem er illa dulbúin skopstæling af George W. Bush. Aðstoðarmaður Cambys minnir á Dick Cheyney að útliti og innræti, auk þess sem einn af óþokkum þeirra félaga heiti Sam Palin, með augljósri vísun í Söru Palin.
Lukku Láki og Hayes vinna svo frægan sigur á fólinu frá Texas og Hayes kemst í Hvíta húsið eins og fínn maður.
…er ekki löngu tímabært að bókaútgefendur vakni og fari að gefa Lukku Láka út að nýju á íslensku. Þetta er augljós metsölubók!

July 9th, 2009 at 14:24
Góð saga, en veruleikinn var öllu napurri.
Í raun tapaði Hayes kosningunum 1876 fyrir Samuel Tilden, ef miðað er við greidd atkvæði, en hann varð samt sem áður forseti. Báðir frambjóðendur hlutu nefnilega jafn marga kjörmenn og málinu því skotið til þingsins. Þar féllust Demókratar á að styðja Hayes gegn því að neyðarlög í Suðurríkjunum yrðu afnumin og hermenn kallaðir heim. Í kjölfarið voru svo blökkumenn sviptir kosningarétti víðast hvar í Suðrinu og það var traust vígi Demókrata í marga áratugi. Kosning Hayes var því bæði gegn vilja meirihluta kjósenda og tryggði margra áratuga áframhald mannréttindabrota í Suðurríkjunum. Varla hægt að hugsa sér verri útkomu úr einum forsetakosningum.
Ófögur saga og hefði ekki veitt af Lukku-Láka að skakka leikinn.