Versti samanburðurinn…
Björg Magnúsdóttir, blaðamaður á Pressunni, skrifar pistil um pólitíska ábyrgð - eða öllu heldur skort á pólitískri ábyrgð í samfélaginu. Allt gott um það að segja.
Björg grípur hins vegar til samanburðar við fótboltaheiminn - og sá samanburður gæti varla verið óheppilegri.
Samkvæmt pistlinum ætti pólitíkin að vera meira eins og fótboltinn. Þar axli þjálfarar glaðir ábyrgðina og telji ekkert sjálfsagðara en að vera reknir þegar liðið tapar mörgum leikjum. Engum þeirra detti í hug að svekkja sig á slíkum brottrekstri eða grípa til þess að kenna öðrum en sjálfum sér (s.s. stjórn eða leikmönnum) um ófarirnar.
Þetta er besta öfugmælavísa sem ég hef heyrt lengi. Eftir að hafa fylgst með fótbolta í rúman aldarfjórðung dettur mér varla í hug nokkurt dæmi um þjálfara sem láta fallast á sverð sitt. Þvert á móti streitast þeir undantekningarlaust á móti þegar þeim er sagt upp störfum, telja sig grátt leikna og hafða fyrir rangri sök. Það er líka bara mannlegt.
Það er samt gaman á þessum kaldhæðnu tímum, að til skuli vera fólk sem trúir í raun og veru fréttatilkynningum þjálfara og stjórna knatspyrnufélaga um „sameiginlega niðurstöðu beggja aðila um starfslok…“

July 7th, 2009 at 11:28
Þjálfarar finna líka oftast nýtt starf innan greinarinnar - þurfa kannski að færa sig niður um deild eða tvær. Stundum ná þeir að koma liðinu upp.
Stjórnmálamenn gætu prufað þetta líka og hafa eflaust gert. Geir og Ingibjörg geta t.d. farið í sveitarstjórnarmálin í litlum hreppi úti á landi og reynt að vinna sig upp aftur.
July 7th, 2009 at 11:31
Aha… Ingibjörg gæti reynt að taka við Frjálslynda flokknum og Geir við Nýju afli…
July 7th, 2009 at 11:41
Hæ
Verð aðeins að fá að kommenta á færsluna hjá þér Stefán.
Það er misskilningur að undirrituð gleypi þær fréttatilkynningum sem látnar eru flakka úr herbúðum fótboltaliðanna, þ.e. að þjálfar séu hinir glöðustu að fá reisupassann. Írónían og kveikur pistilsins var einmitt hversu skemmtilega fréttatilkynning Vals var orðuð, sbr hér http://www.visir.is/article/20090701/IDROTTIR0101/368875636/1053.
Punkturinn er sá, sem pistillinn gengur út á, að þjálfarinn kyngir ákvörðun yfirvaldsins eftir of marga tapleiki og verður að gera það. Ekkert endilega brosandi, en verður að gera það. Síðan er auðvitað gefin út huggulega tilkynning.
Ef þú hugsar þetta í ofureinföldum einingum færðu út: fótboltaþjálfari tapar leikjum = hann er látinn fara. Stjórnmálamaður tapar leikjum = hann fer ekki neitt.
Með kveðju,
BM
July 7th, 2009 at 12:01
Sæl Björg
Það var nú einkum þessi klausa sem ég hnaut um: “Ég sé Willum ekki fyrir mér klórandi í bakkann, reyna að kenna Þorgrími aðstoðarþjálfa um allt saman eða segja leikmennina bera ábyrgð á tapi liðsins. Nei, ég held að við myndum ekki heyra Willum eða annan fótboltaþjálfa taka þessa týpu. Af því að þeir vita að þjálfari ber ábyrgð á gengi liðsins. Ekki síður vegna þess að í boltamenningu helst leikjatap saman við brottrekstur.”
Mín kynni af boltamenningu eru einmitt á þá leið að sérhver brottrekinn þjálfari reynir að klóra í bakkann eða benda á aðra blóraböggla.
Kveðjur,
Stefán
July 7th, 2009 at 12:12
Og hefurðu heyrt Willum kenna Þorgrími um það hvernig málum er nú háttað?
July 7th, 2009 at 12:22
Nei, en það er altalað í boltaheiminum að það hafi orðið uppreisn í búningsklefanum hjá Val. Og það hefur svo sem ekki farið fram hjá mönnum að það hafa verið árekstrar milli þjálfarans og stjórnarinnar, þar sem Willum hefur sent stjórninni tóninn.
Ég held að það sé síst minni pólitík í gangi innan íþróttafélaga en í sjálfum landsmálunum…
July 7th, 2009 at 16:22
þarf ekki að setja (b) við umræðuna
July 7th, 2009 at 17:11
Ber að lesa úr þessu að það sé óánægja í klúbbnum með stjórann?