Argentína
Ein aðalfrétt Útvarpsins í dag fjallaði um að erlend peningastofnun hefði gefið út lista yfir þau lönd sem líklegust væru til að lenda í greiðsluþroti - fara á hausinn. (Venjulegt fólk veðjar á netinu um hvaða fræga fólk muni deyja á árinu, en verðbréfadrengirnir giska á hvaða lönd verði gjaldþrota…)
Fréttapunkturinn hér heima var vitaskuld sá að Ísland er ofarlega á blaði með rúmlega þriðjungs líkur.
Annað var þó ekki síður áhugavert við listann. Argentína var í toppsætinu og höfðu hagfræðingarnir áætlað um 70% líkur á greiðsluþroti. Þessi staðreynd ætti að vekja menn til verulegrar umhugsunar hér heima, því þegar rætt hefur verið um möguleikann á því að Ísland segi sig einfaldlega frá skuldum sínum - lýsi yfir greiðslufalli - þá hefur Argentína verið nefnd sem fyrirmynd.
Ýmsir virðast álíta að gjaldþrot ríkja lúti sömu lögmálum og þegar einstaklingar eða fyrirtæki fari í þrot - að til verði ný kennitala og hægt sé að byrja aftur með hreint borð. Þannig hef ég heyrt suma flokksfélaga mína í VG tala á þeim nótum að Íslendingar verði aldrei borgunarmenn fyrir skuldunum og því sé jafnvel betra að „taka höggið núna strax“ - hugmyndin virðist vera sú að illu sé best af lokið.
Og auðvitað eru margir skotnir í rómantísku hugmyndinni um greiðslufall, ef hún þýðir 4-5 ár af þrengingum og hálfgerðum sjálfsþurftarbúskap - en síðan væri hægt að byrja aftur með hreint borð.
En svona virkar þetta bara því miður ekki. Það sannar staða Argentínumanna í dag.
Ríki sem neyðast til að grípa til greiðslufalls, dæma sig til áframhaldandi þrenginga. Þegar þau fá loksins aftur lán, eru kjörin afleit. Og gömlu skuldirnar hafa tilhneigingu til að skjóta aftur upp kollinum, eins og reynsla Argentínumanna sýnir.
Sú hugmynd að það geti verið efnahagslegt gæfuspor fyrir ríki að setja sig á hausinn fyrr heldur en síðar hlýtur því að teljast álíka vanhugsuð og hjá liðinu sem reynir að verða sér út um svínaflensu núna í þeirri von að sleppa betur seinna…

July 3rd, 2009 at 23:05
Kippti út athugasemdum frá: ewa266@onet.eu, ip-tala 194.144.59.79
Nenni ekki að skiptast á skoðunum við nafnleysingja. Endilega póstaðu aftur, en þá undir nafni.
July 4th, 2009 at 04:54
Ég hugsa það sé samt ekki bara hægt að rekja núverandi efnahagsvanda Argentínu sem afleiðingu af greiðslufallinu - ætli það sé ekki nær lagi að bæði greiðslufallið og núverandi vandamál séu afleiðing af heimatilbúinni efnahagsóstjórn, þó greiðslufallið hjálpi auðvitað ekki til.
Eða með öðrum orðum, þá er fleira sem skiptir máli fyrir okkar ökonomísku framtíð hvort eða hve hratt við borgum okkar skuldir og meginatriðið er að búa til fúnkerandi umgjörð utan um efnahagslífið, og einkum og sér í lagi gjaldmiðilinn.
July 4th, 2009 at 07:39
Það er klárlega rétt. Eða öllu heldur - ætli sömu undirliggjandi ástæður ráði ekki mestu um vandræðin nú og ollu greiðslufallinu fyrir áratug.
Punkturinn er samt aðallega þessi: greiðslufall er ekki patentlausn sem gefur ríkjum í bobba kost á að spóla til baka og byrja upp á nýtt.
July 4th, 2009 at 09:45
Það eru miklar líkur á greiðslufalli Íslands ef fyrirliggjandi Icesave víxill er samþykktur (1000 milljarðar miðað við of lágt skráð gengi krónunnar). Yfir helmingur íslenskra heimila er með þunga greiðslubyrði. Nýtt 1000 milljarða erlent lán vegna óljósrar ábyrgðar á braski og gallaðrar löggjafar hjálpar okkur ekki.
July 5th, 2009 at 00:11
Án þess að þekkja til þess vanda sem Argentína á við að etja finnst mér sem að þú hafir á réttu að standa. Með því að greiða ekki okkar skuldir erum við að gefa skít í alla þá sem eru líklegastir til þess að eiga við okkur viðskipti í framtíðinni og í þeirri stöðu sé ég ekki að sé auðvelt að sleppa úr. Menn eiga ekki viðskipti aftur við þá sem borga ekki!!