TNS

Á morgun leika Framarar heimaleik gegn TNS frá Wales í Evrópukeppninni.

Síðasti Evrópuleikur okkar fór fram haustið 1992. Andstæðingarnir voru Kaiserslautern og það var spilað um miðjan dag, fyrir einhverja þýska sjónvarpsstöð.

Fyrir vikið þurfti ég að skrópa í síðasta tíma dagsins til að ná leiknum. Það var kennslustund í sögu hjá Árna Indriðasyni. Það var fyrsta menntaskólaskrópið mitt.

Ó boj, þau áttu sko eftir að verða fleiri… en maður gleymir aldrei fyrsta skiptinu.

3 Responses to “TNS”

  1. JBJ Says:

    Mér finnst endalaust fyndið að Heildarnetlausnir spili í Evrópukeppni (Total Network Solutions eins og TNS hét víst eftir að samnefnt fyrirtæki gerðist aðalstyrktaraðili).

  2. Einar Örn Says:

    Gerði ekki Fram 2-2 jafntefli við Panathinaikos 1992? Var það þá í umferðinni á undan?

  3. Steinunn Þóra Says:

    Ég kunni betur við þig þegar þú merktir fótboltafærslurnar með (b)

Leave a Reply