Morðinginn
Óskaplega er það fyrirsjáanlegur atvinnurógur að líflækni Michael Jacksons sé kennt um að hafa drepið hann. Það er nánast klisja þegar frægir kallar deyja að lækninum sé kennt um.
Miklu frjórra er að spyrja sig: hver átti harma að hefna?
Og svarið er augljóslega Prince.
Það er rökrétt! Voru þeir ekki erkióvinir á níunda áratugnum, þar sem þeir börðust um hásæti poppsins? Annar reyndist vera Mozart, hinn Salieri…
Lífið væri svo miklu auðveldara ef við værum öll í einum stórum Matlock-þætti.

June 28th, 2009 at 12:38
Ég held að það hafi verið brytinn.
June 28th, 2009 at 13:40
Jahérna… er þá Jackson Mozart og Prince Salieri? Því get ég ekki verið sammála. Eigum við ekki frekar að annar sé Handel og hinn Pachelbel.
June 28th, 2009 at 16:19
Hér gæti ég nefnt tvö stórveldi tónlistarinnar til að sýna þekkingu mína - svo sem Halla og Ladda - en það geri ég ekki.
June 28th, 2009 at 16:20
Plant og Page?
June 28th, 2009 at 22:39
Það var regin hneyksli að gera Salieri upp sakir líkt og gert var í leikriti Peter Shaffer sem var byggð á míníleikriti Alexandr Pushkin. En auðvitað er Prince sekur.
Lifi wikipedia…