Björgvin

Þegar Malcolm McLaren var á hvað svæsnasta egó-flippinu sem umboðsmaður Sex Pistols, réðst hann í það að gera kvikmyndina The Great Rock´n´Roll Swindle - sem átti að segja sögu hljómsveitarinnar… án þess þó að rætt væri við Johnny Rotten.

Sú hugmynd var augljóslega galin - enda reyndist myndin drasl.

Þess vegna er ég að rifja þetta upp, að ég kveikti á því í dag að nú eru menn búnir að þrefa um Icesave-mál í tíu daga. Allan þann tíma virðist Björgvin G. Sigurðssyni hafa tekist að halda sig frá kastljósi fjölmiðlanna.

Er það að fjalla um Icesave án þess að ræða við Björgvin ekki á pari við að segja sögu Sex Pistol án samráðs við herra Rotten?

2 Responses to “Björgvin”

  1. Tryggvi Says:

    hver er þessi björgvin?

  2. Einar Jón Says:

    Hvað veit þessi Björgvin eiginlega?
    Er þetta ekki eins og að ætla að ræða við “söngvarana” í Milli Vanilli um innihald textana þeirra?

Leave a Reply