Stóra núllið

Stóra núllinu er náð. Eftir að hafa leikið helming leikjanna og einum betur, er Luton komið upp í núll stig.

Gerðum jafntefli í kvöld gegn Chester á útivelli, 2:2. Þetta er áttundi leikurinn í röð án taps í deildinni… vandamálið er að nánast allir þessir leikir hafa endað með jafntefli, sem hefur lítið að segja í fallbaráttu.

Þá er bara að gera betur gegn Darlington í næsta leik… Þangað mæta allir góðir menn!

# # # # # # # # # # # # #

Ég ætla ekkert að blogga um annað keppniskvöld Gettu betur. Hlustaði ekki á keppnina, þar sem ég var á Neshaganum að fara í gegnum bókaskápana í dánarbúi afa og ömmu.

Bókasafnið þeirra er að mestu laust við dýrgripi, en þar er líka sáralítið af rusli. Merkilegustu bækurnar eru væntanlega ýmis ljóðakver úr fórum skáldkonunnar, Ingibjargar langömmu. Mörg hver árituð persónulega.

Skemmtilegast fannst mér þó að rekast á eintak af Hvalasögu Kjarvals, áritað til langafa og langömmu. Ekki vissi ég að sú bók væri til í safninu og hef þó skoðað það býsna vel…

One Response to “Stóra núllið”

  1. Sverrir Says:

    Jæja, ég var að vona að þessi pistill fjallaði um Geir Haarde og athyglisverð söguleg líkindi með þeim Tryggva Þórhallssyni. Talandi um villandi fyrirsögn!

    Af einhverjum ástæðum eru það iðulega bækurnar sem manni finnst mikilvægt að koma vel fyrir þegar farið er í gegnum dánarbú. Kannski er það samt einstaklingsbundið.

Leave a Reply