Sjálfseyðingarhvöt?

Niðurstöður skoðanakannanna eru ekki alltaf rökréttar.

Könnunin sem Helgi í Góu birtir á opnuauglýsingu í Fréttablaðinu í morgun slær þó öll met.

Samkvæmt henni er mikill meirihluti þjóðarinnar hlynntur því að lífeyrissjóðirnir ráðist í byggingu á leiguhúsnæði fyrir eldri borgara. Allnokkrir eru þó andsnúnir þessu og talsverður hópur er óákveðinn.

Þvínæst er spurt hvort það hefði áhrif á afstöðu fólks ef þessar framkvæmdir yrðu til að rýra afkomu sjóðanna.

Þá gerist það furðulega - að stuðningurinn eykst!

Það verður varla skilið öðru vísi en að það sé stór hópur fólks sem vilji hreinlega verri afkomu lífeyrissjóðanna og fagni hreinlega hverri þeirri ráðstöfun sem grafið geti undan þeim. Það hlýtur að vera einstakt dæmi um sjálfseyðingarhvöt…

Önnur skýring er sú að visst hlutfall fólks svari svona spurningum bara út í bláinn og sé ófært um að muna hvernig það svaraði spurningunni tíu sekúndum fyrr…

4 Responses to “Sjálfseyðingarhvöt?”

  1. Andri Valur Says:

    Ég hnaut einmitt um það sama þegar ég sá auglýsinguna, þetta gat tæplegast staðist. Ef þú lest textann frá Helga þá kemur það skýrt fram að síðari spurningin (76,6%) tekur aðeins til þeirra sem sögðust vera hlynntir í fyrri spurningunni.
    Þannig að það er ríflega helmingur þjóðarinnar hlynntur uppbyggingu slíkra heimila þrátt fyrir að það rýri höfuðstól lífeyrissjóðanna skv. niðurstöðu þessarar könnunar.

  2. kolbeinn Says:

    Ég sem skildi þetta á sósíalískum nótum. Að stór hópur fólks væri til í að taka á sig verri lífeyriskjör ef húsnæðismálum aldraða yrði komið í gott horf. Svo kemur síðuhöldur og skýtur niður hinn sósíalíska draum. Líklega súpandi á soda stream á meðan.

  3. Stefán Says:

    Aha, þannig að Helgi er aðeins að svindla í myndrænu framsetningunni.

    En hitt hefði þó verið miklu skemmtilegra - ef umtalsverður hópur fólks hefði verið til í fjárfestingu lífeyrissjóðanna, þá og því aðeins að þeir töpuðu á henni…

  4. Andri Valur Says:

    Það hefði klárlega verið skemmtilegri niðurstaða.
    En hvernig var það um árið voru ekki fleiri, skv. Þjóðarpúlsinum, sem höfðu traust á fréttum á samtengdum rásum Rúv en á fréttum hvorrar rásar fyrir sig? Man ekki nákvæmlega hvernig það var en þetta var nokkurnveginn svoleiðis.

Leave a Reply