Föstudagsgetraun

Nú er spurt:

Í íslensku stjórnmálasögunni hefur það einu sinni gerst að menntaður loftskeytamaður hafi orðið ráðherra. Hver var sá?

# # # # # # # # # # # # #

Að öðru - hefði ekki verið betra að leyfa Ástþóri Magnússyni að tala og færa Stefáni Eiríkssyni þessa gjöf sína? Þessi uppákoma á fundinum virðist ekki hafa verið neinum til sóma.

8 Responses to “Föstudagsgetraun”

  1. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Magnús H. Magnússon krati úr Vestmannaeyjum.

  2. Stefán Says:

    Jamm, þetta vafðist ekki fyrir mönnum.

    Og hann varð meira að segja samgönguráðherra! Það hlýtur að gleðja þá sem kalla eftir því að ráðherrar séu fagmenn á sínu sviði…

  3. Gísli Says:

    Framboð af Ástþóri virðist vera meira en eftirspurn.

  4. Henrý Says:

    Ef ég hefði verið fundarstjóri þá hefði ég sennilega metið það sem svo að það væri skárra að leyfa Ástþóri að gera sjálfan sig að fífli en mig.

    Hinsvegar fer fleiri en einni sögu af atvikum.

    Það finnst mér hinsvegar merkilegt hvu hatrammur friðarsinninn Ástþór er gagnvart vinstri mönnum.

  5. Svenni Says:

    Já, meikar sens að nornir megi ræða um mótmæli en jólasveinar ekki. Algjörlega.

  6. Steinarr Kr. Says:

    Er samasemmerki á milli vinstri manna og friðarsinna?

  7. hildigunnur Says:

    Hver veit hvað Ástþór hefði talað lengi? Klukkutíma? Tvo?

  8. Henrý Þór Says:

    Steinarr: Nei, en eina friðarsinnaða stjórnmálaaflið er vinstri flokkur. Maður myndi halda að fólk sem einsetti sér að koma á friði fyrir árið 2000 myndi reyna að vinna með öðrum friðarsinnum. Hann er nánast að brenna út á tíma.

Leave a Reply