Enginn leikur

Enn er fótboltaleikjum frestað í Bretlandi. Luton og Rotherham áttu að leika á morgunn, en því hefur verið frestað. Sömu sögu er að segja um leik næstneðsta liðsins - Bournemouth. Spenningur morgundagsins verður því í tengslum við stórleikinn Grimsby - Morecambe…

Annars er þetta ágætt. Til stóð að við lékum fjóra leiki á tíu dögum. Núna verða þeir bara þrír á sjö dögum.

Spurning hvort Chester - Luton geti farið fram á þriðjudag?

3 Responses to “Enginn leikur”

  1. Benedikt XVI Says:

    Maður hefur nú meiri áhyggjur af því hvort leikur Darlington og Luton fari fram um aðra helgi, af augljósum ástæðum. Áhyggjur er kannski ekki alveg rétta orðið, en þó í áttina.

  2. Andrés Kristjánsson Says:

    Munu leikirnir ekki bara þéttast fyrir vikið?

    Er heldur ekki möguleiki á því að önnur lið finni sig í greiðslustöðvun?

  3. Stefán Says:

    Jú, en það er svigrúm fyrir stífara leikjaprógram í febrúar/mars. Þetta er orðið aðeins of stíft núna.

    Grimsby spilaði ekki í dag, en Barnet tapaði. Þeir eru tuttugu stigum á undan okkur - hafa bara unnið einn af síðustu fimmtán leikjum og þykja almennt afleitir. Þar er smávon.

    Önnur lið í greiðslustöðvun? Tja, Bournemouth stendur rosalega illa. Ég er samt smeykastur um að þeir muni þrauka út tímabilið til þess eins að verða gjaldþrota á næsta ári. Eigendur félagsins hafa lýst því yfir að það muni ekki lifa það af að falla.

    Chester er í einhverjum ógögnum. Þeir fengu frestaða leikinn um daginn settan niður í næstu viku en ekki síðar með þeim rökum að þeir þyrftu nauðsynlega á aðgangseyrinum að halda. Það lofar ekki góðu.

Leave a Reply