Eldfærin

Í H.C. Andersen-ævintýrinu um Eldfærin, koma fyrir þrír hundar með stór augu. Augu þess stærsta voru eins og Sívaliturnar.

En hvort skyldi þar vera átt við að augun hafi verið eins og Sívaliturninn á hæðina - eða erum við að tala um breiddina (þvermálið á sjálfum hringnum)?

Ég hef lengi velt þessu fyrir mér.

12 Responses to “Eldfærin”

  1. Toggi Says:

    Sá þetta sem barn fyrir mér sem turninn standandi upp á endann, sem einhverskonar augastein. Og þótti þetta frekar klunnalegt líkingamál man ég.

    það var ekki fyrr en ég og félagar mínir gerðum handrit að HC-andersensýningu í Þjóðleikhúsinu að ég heyrði af hinni sýninni. Sem er snöggtum sjónrænt skynsamlegri, þó óneitanlega minnki augun.

  2. Eyja Says:

    Mér þótti þetta líka alltaf undarlegt, átti erfitt með að sjá fyrir mér hvernig augu gætu verið eins og turnar.

  3. Óli Gneisti Says:

    Ég man ekki eftir að hafa hugsað um þetta öðruvísi en ummálið og hef aldrei áður hugsað út í möguleikann á að þetta hafi verið hæðin.

  4. anna Says:

    Ég neyðist til að samsinna Óla Gneista

  5. Andrés Magnússon Says:

    Ég man eftir því að sem barn skildi maður ekkert í þessum samanburði… fyrr en ég gekk upp Sívalaturninn 8 ára gamall. Þá lá það í augum uppi. Það er ummálið. Sjá ljósmynd af akveginum í turninum: http://www.rundetaarn.dk/dansk/taarnet_grafik/sneglegang_forside.jpg

  6. Kristín Says:

    Tek undir með Önnu og Óla Gneista. Hafði aldrei dottið hæðin í hug.

  7. hildigunnur Says:

    ég sá fyrir mér hæðina, en væntanlega er ummálið meiningin.

  8. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Ég er einn af þeim sem sá alltaf fyrir mér að um hæðina væri að ræða. Þegar ég kom til Kaupmannahafnar í fyrsta skipti ríflega tvítugur sá ég að það var kannski full mikið. Ég þakka fyrir að benda á hin kostinn, sem augljóslega flestir sæmilega greindir menn hefðu fattað sjálfir, en svona er ég nú…

  9. Elías Says:

    Eins og Andrés, þá hélt ég alltaf að það væri hæðin þar til ég gekk í fyrsta sinn upp Sívalaturn.

  10. HT Says:

    Ef frumtexti H.C. Andersen er skoðaður liggur þetta í augum uppi:
    http://74.125.77.132/search?q=cache:B7wdPaqulW0J:www.sprogetilitteraturen.gyldendal.dk/pdf/238.pdf+h.c.+andersen+store+runde+taarn&hl=is&ct=clnk&cd=3&gl=is&client=firefox-a

    Fyrsti hundurinn með augu á stærð við tebolla, næsti á stærð við myllustein og sá þriðji á stærð við Sívala turninn.

  11. pallih Says:

    Ég sá alltaf fyrir mér rúmmálið.

  12. Birkir Says:

    Þegar ég naut þessar bókar sem barn, þá langaði mig nú bara að vita hvað í andskotanum Sívalíturn var. Sem mælieining þá hafði þetta ekkert point of reference fyrir mér.

Leave a Reply