Fjölveri

Forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag er stórmerkileg. Það er gott fyrir okkur borgarana að vita að fv. forsætisráðherra hafi staðið vaktina og gætt þess að hjúskaparlög væru ekki brotin. Spurning hvort fólk sem verður fyrir heitrofum geti farið með mál sín beint í Stjórnarráðið?

Annars var ég að reyna að botna í fréttinni þegar ég las hana á hlaupum milli þess að klæða grísinn og koma í leikskólann.

Mér sýnist helst að Davíð hafi haft áhyggjur af því að ekki væru fullnægjandi gögn til um skilnað núverandi forsetafrúar - með öðrum orðum: hann hefur óttast að hún yrði uppvís að fjölveri.

Fjölkvæni (og væntanlega fjölveri líka) er refsivert smkv. íslenskum lögum. Hver eru viðurlögin? Fangelsi? Sektir?

Í gegnum tíðina hafa nokkrir karlar verið nappaðir fyrir fjölkvæni, en hefur fallið dómur yfir konu fyrir fjölveri?

Og hvað með lögin um staðfesta samvist? Er sá t.d. fjölkvænismaður sem reynist í senn í hjónabandi og staðfestri samvist? Það hlýtur eiginlega að vera… - eða er hér gloppa í lögunum?

Cue: besserwissera-lögfræðingar í athugasemdakerfinu…

9 Responses to “Fjölveri”

  1. Elías Says:

    Ég hef heyrt að refsingin við tvíkvæni sé að hafa tvær tengdamæður.

    Annars hef ég ekki getað kvartað yfir mínum.

  2. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Í 1. mgr. 2. gr. laga um staðfesta samvist segir: ,,Ákvæði II. kafla hjúskaparlaga gilda um skilyrði til þess að samvist verði staðfest samkvæmt lögum þessum…”
    Í öðrum kafla hjúskaparlaga er 11. gr. þar sem segir: ,,Eigi má vígja mann sem er í hjúskap.”
    Sem þýðir að ekki má staðfesta samvist manns eða konu sem er í hjúskap.

    Já ég tók besserwissera-commentið til mín ;o)

  3. Stefán Bogi Sveinsson Says:

    Og já í 188. gr. almennra hegningarlaga segir:
    ,,Ef kvæntur maður eða gift kona gengur að eiga aðra konu eða annan mann, þá varðar það fangelsi allt að 3 árum, eða, ef hinum aðiljanum var ókunnugt um fyrra hjónabandið, fangelsi allt að 6 árum.
    Sé brot framið af stórfelldu gáleysi, þá varðar það …1) fangelsi allt að 1 ári.
    Ókvæntur maður eða ógift kona, sem gengur að eiga gifta konu eða kvæntan mann, skal sæta …1) fangelsi allt að 1 ári. Nú skal hjónaband ekki sæta ógildingu, og má þá dæma sektir …1) eða jafnvel láta refsingu falla niður.”

    Samkvæmt þessu þá voru uppi spurningar um það hvort forseti Íslands hefði gerst sekur um refsivert athæfi. En hann hefði þá þurft að hafa haft a.m.k. einhverja vitneskju um að frúin væri enn gift öðrum.

  4. Andrés Magnússon Says:

    Já, þetta er sjálfsagt hið merkilegasta mál. En ef það er hið fréttnæmasta, sem Guðjón Friðriksson fann sér til umfjöllunar, hygg ég að bókin sé jafnþunnur þrettándi og yrkisefnið.

  5. Andrés Magnússon Says:

    Hitt er síðan annað mál, í ljósi þess hvernig forsetaembættið hefur þróast, hvort forsætisráðherra hafi ekki einungis viðhaft eðlilega varkárni. Þegar ævintýrakona utan úr heimi kemur skyndilega á sjónarsviðið getur það sett ríkiserfðirnar í uppnám. Ég minni á hvernig Bretar tóku á viðlíka máli 1936.

  6. Stefán Says:

    …já… og ef Björn Bjarnason hefði fengið að stofna leyniþjónustuna sína - þá mætti rifja upp hvernig Bretar tóku á viðlíka máli 1997.

  7. Geir Says:

    http://www.dv.is/blogg/thorarinn-thorarinsson/2008/11/21/mr-er-aexlid/

  8. kela Says:

    Fjölmiðlaumfjöllun frá samdráttarskeiði skötuhjúanna voru með þeim blæ að líklegra er að ráðuneyti hafi verið tilneytt til athugasemda. Man enginn eftir commentum fv maka 1st lady um að hún mundi aldrei gerast bóndakona etc. Þessi framsetning Guðjóns er í besta falli jafn ómerkileg tilraun til markaðssetningar eða PR trick eins og vantraust Steingríms og félaga á stjórnina. Auðvitað er þetta bara pólitísk árás á Dabba greyið, sem liggur núna vel við höggi. Af hverju er Solla með höfuðmeinið látin í friði eða er hún ein fær um að leiða lýðinn út úr ógöngunum - er heilaskurður eitthvað BARA ??? Eitthvað sem fólk útskrifar sig úr sjálft og labbar svo bara um með pilluglösin sín og greiðir fallega yfir sauminn.
    Legg til að sama gildi um pólitíkusa og afreksfólk í íþróttum: Pissa fyrirvaralaust í glas - til að sanna sakleysi sitt. Sá / sú sem taki þátt í að setja okkur lög eða reglur, sé í standi til að keppa í íþróttum eða aka bíl.

  9. Þráinn Kristinsson Says:

    Tveir skammtar af skítlegu eðli:
    Davíð vildi aðeins hnippa í Ólaf með þessu bréfi: ég veit doldið Óli sem þú heldur að ég viti ekki og hika ekki við að nota það ef ég þarf.
    Davíð vildi niðurlægja Ólaf með því að senda honum þetta bréf með atugasemdum um einkamál hans

Leave a Reply