Vítabani

Sverrir Jakobsson er prinsipelt á móti vítakeppnum. Hætti meira að segja að horfa á úrslitaleikinn á HM 1994 þegar ljóst var að hann færi í vítakeppni. Það er rétttrúnaður.

Sjálfum er mér illa við vítakeppnir. Þær eru ekki “alvöru” leið til að útkljá fótboltaleiki. Samt er eitthvað pínkulítið heillandi við hversu grimmdarlegar og dramatískar þær eru.

Í annað sinn í vetur sigraði Luton í vítakeppni í kvöld. Sú fyrri var í málningarbikarnum um daginn, en sú seinni kvöld gegn Altrincham í fyrstu umferð enska bikarsins. Í bæði skiptin hefur Conrad Logan - markvörðurinn sem við erum með í láni frá Leicester varið tvær spyrnur í vítakeppninni og í kvöld varði hann eina í viðbót í leiknum sjálfum.

Ein meiðsli og rautt spjald á Sol Davies gera sigurinn nokkuð dýrkeyptan. Og þó - fyrir að fara í aðra umferð koma 20 þús. pund í kassann+ tekjur af leiknum (útileik gegn Southend). Það kætir stuðningsmennina. Þeim finnst fátt skemmtilegra en að halda á suðurströndina til að horfa á leiki.

Rochdale úti á laugardaginn gæti hins vegar orðið býsna strembinn leikur.

# # # # # # # # # # # # #

Á mánudaginn tók ég þátt í nýjasta trendinu og dýfði mér í Atlantshafið. Það var kalt.

Er ég Benedikt Lafleur minnar kynslóðar? Ætti ég að taka upp eftirnafnið Allabadderí?

# # # # # # # # # # # # #

Hittum Ásu ljósmóður í dag. Erum himilifandi með að hafa fengið hana aftur. Kom í ljós að hún er gift frænda mínum, sem spillir nú ekki fyrir.

4 Responses to “Vítabani”

  1. anna Says:

    Svo ætlar hún Sonja frænka mín að standa á hliðarlínunni á laugardaginn og fagna innilega í hvert sinn sem Reykholtsdalur (Rochdale) skorar gegn Luton. Hún fylgir nefnilega liðinu eftir og eldar ofan í strákana á leikdögum bæði heima og heiman.

    http://images28.fotki.com/v964/photos/8/801079/3776018/IMG_0198-vi.jpg

    Þess má geta að myndin af henni er tekin í Halifaxhreppi sem er eigi allfjarri Reykholtsdalshreppi (Rochdale)

  2. Magnús T Says:

    Ég óska til hamingju!

  3. Óli Gneisti Says:

    Ég speisaði út eftir Lafleur en Eygló benti mér síðan á fréttirnar. Gaman að heyra.

  4. Daði Says:

    Önnur leið til að útkljá jafna leiki….halda á lofti keppni :-)

Leave a Reply