BNP

Frétt dagsins í Bretlandi er félagatal hægriflokksins BNP, sem lekið var á netið.

BNP er andstyggilegur lítill flokkur kynþátta- og útlendingahatara. Þess vegna liggur fólk nú yfir listunum og veltir vöngum yfir því hvort t.d. kennurum eða lögreglumönnum af listanum sé sætt í starfi.

Annar og kúnstugri flötur á málinu eru viðbótarupplýsingar sem umsjónarmenn félagatalsins á einstökum stöðum hafa bætt inn við nöfn viðkomandi félagsmanna:

“Member describes himself as a witch: potential embarrassment if active … ”

“Buddhist … ”

“Pubic speaker. Has two suits of medieval 14th & 15th century armour … “

Er ekki dálítið kyndugt að vera breskur Búddisti og rasisti í senn?

Hins vegar kemur ekki fram hvort það að eiga hringabrynju telst kostur eða löstur í BNP.

6 Responses to “BNP”

  1. Erna E. Says:

    Mér finnst “pubic speaker” áhugaverðasti parturinn. Hvernig fer slíkt athæfi fram?

  2. Óli Gneisti Says:

    Á listanum sem ég sá kemur fram að hann sé tilbúinn í burtreiðar fyrir flokkinn.

  3. Magnús T Says:

    Þessi “pubic speaker” er án efa afar slyngur málvísindamaður.

  4. Steindór Says:

    Eða meistari í rökræðum.

  5. Helgi Briem Says:

    A good pubic speaker must be a cunning linguist er sennilega það sem Magnús T er að ýja að.

  6. name Says:

    comment3,

Leave a Reply