Í draumaheimi

Í hvaða draumaheimi lifir Guðjón Arnar Kristjánsson?

Hann telur að með yfirtöku ríkisins á bönkunum sé sóknarfæri fyrir ríkið að leysa til sín fiskveiðiheimilidir útgerðarinnar og stokka í kjölfarið upp kvótakerfið.

Á sama tíma og Guðjón Arnar smíðar þessa loftkastala höfum við hin áhyggjur af því hversu langt eignir og veð bankanna hrökkvi upp í svimandi skuldir þeirra. Það er ótrúlegur barnaskapur að ímynda sér að atburðir síðustu daga þýði það fyrst og fremst að ríkið hafi óvænt eignast allan kvótann og geti nú farið að skemmta sér við að skipta honum upp…

4 Responses to “Í draumaheimi”

  1. Jóhann Says:

    Ég er ekki sammála þér Stefán.
    Held einmitt að nú sé lag til að brjóta upp þetta ótrúlega kerfi.

    Allir í bátana!

  2. Stefán Says:

    Þetta snýst ekki um tilefni heldur forsendur…

  3. SG Says:

    Í hvaða draumaheimi lifir þú Stefán? Það verður á endanum fiskurinn í sjónum sem gengur upp í þessar skuldir og hvers vegna ættu menn ekki að fara að pæla í sanngjarnri nýtingu hans? Enda kominn tími til. Get ekki séð að það sé einhver sérstakur partýleikur að skipta upp veiðiheimildum.

  4. Stefán Says:

    …uh, já! Það er einmitt málið. Það er fiskurinn í sjónum sem mun ganga upp í þessar skuldir.

    Og þessi sami fiskur liggur núna sem veð hjá íslenskum bönkum sem eiga ekki fyrir skuldum.

    Það er stórkostlegt VANDAMÁL en ekki TÆKIFÆRI eins og Guðjón Arnar virðist halda.

    Þegar IMF kemur hingað og semur greiðsluáætlun fyrir íslenska ríkið, þá þarf enginn að veltast í vafa um hvað sjóðurinn vill að gert verði við þessi veð.

    IMF og “sanngjörn nýting” eru hugtök sem ríma ekkert sérstaklega vel saman…

Leave a Reply