Óráðsía

Fokk… Framstrákarnir unnu leikinn sinn í Evrópukeppninni í handboltanum.

Þá þurfa þeir líklega að fara aftur út að keppa…

…og eyða ennþá fleiri dýrmætum evrum.

Rats!

# # # # # # # # # # # # # #

Framkvæmdafréttir 2:

Áfram þensla, ekkert stopp!

Draslherbergið á Mánagötunni var tæmt í dag. Næst er að útbúa barnaherbergi - smiðirnir koma eftir helgi.

Við verðum að bjóða kreppunni birginn!

4 Responses to “Óráðsía”

  1. MSM Says:

    Sæll Stefán.

    Þar sem þú ert mikill Skotlandsvinur og sömuleiðis fræðingur, hefur þú einhverjar greinargóðar skýringar á þjóðsöngsstöðu landsins?

    Nú nota þeir yfirleitt Flower of Scotland (sem er einn flottasti ‘þjóðsöngur’ jarðar), en Scotland the brave er líka titlað sem óformlegur þjóðsöngur en þeir eiga engan formlegan söng. Hvernig stendur á þessari flækju?

    kv
    MSM

  2. Stefán Says:

    tja, vandinn er náttúrlega sá að strangt til tekið ætti þjóðsöngurinn að vera God save the queen/king (þjóðsöngur Bretlands)…

    það gengur augljóslega ekki - en á sama hátt er erfitt fyrir bara hálf-sjálfstætt land að lýsa yfir eigin þjóðsöng.

  3. Davíð Þór Says:

    Varstu ekki að auglýsa eftir nafni á sameinaða íþróttafélagið um daginn? Mér datt í hug: Úngmennafélagið Fjölnir-Fram. Skammstafað ÚFF.

  4. Benedikt Says:

    En hvað með:
    Á-FRAM-Fjölnir?

Leave a Reply