Auðvitað hryðjuverkalög!

Íslendingar eru sárir vegna þess að breska stjórnin greip til laga sem skilgreind hafa verið sem “hryðjuverkalög” útaf gjaldþroti íslensku útibúanna.

Það er hins vegar engin ástæða til að vera undrandi á þessu.

Frá árinu 2001 (eftir 11.september) hafa mannréttindasamtök og áhugamenn um réttaröryggi bent á þá tilhneigingu stjórnvalda - í flestöllum ríkjum - að stimpla hina ólíklegustu lagasetningu sem “ráðstafanir gegn hryðjuverkum”.

Með því að grípa til hryðjuverkaspilsins geta stjórnvöld og stofnanir þeirra öðlast auknar heimildir og skotið sér undan ýmis konar eftirliti og gagnrýninni umræðu. Á þetta hefur margoft verið bent.

Við Íslendingar erum ekki saklausir í þessum efnum. Undir forystu utanríkisráðherra hefur verið komið upp “Varnarmálastofnun” þar sem fjöldi borgaralegra verkefna er felldur undir hugtakið “varnarmál” gagngert til að losa stjórnvöld undan leiðindum á borð við það að þurfa að svara spurningum eða gera stjórnsýsluna gagnsæja.

Það er því ekkert skrítið við að Bretar beiti hryðjuverkalögum gegn íslenskum peningastofnunum. Slíkt er þvert á móti í tísku.

10 Responses to “Auðvitað hryðjuverkalög!”

  1. Haukur Says:

    Þetta er hluti af stærri hugsun - hugmyndinni um að þetta eigi ekki við *okkur* af því að við séum ekki neinir villimenn. Bretar eru vinaþjóð okkar og það getur bara ekki verið að þeir séu fúlir út í okkur. Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur. Eða kannski hafa þeir horft of mikið á Kastljósið. Menn virðast hugsa svona í alvöru, eins og þeir haldi að Bretar muni setja okkar hagsmuni ofar sínum. Þó höfum við ekki staðið í meiri deilum við nokkra aðra þjóð en Breta. Ætli sömu menn haldi að Bretar hafi hernumið landið fyrir 60 árum af sérstöku vinarþeli, en ekki vegna þess að breski herinn vildi hér aðstöðu?

    Það er einhver svipuð hugsun í gangi með IMF - ég heyri fólk tala í útvarpinu um að það sé allt í lagi að biðja um aðstoð þaðan, þeir muni ekki setja okkar ströng skilyrði. Hagstjórnin hér er nefnilega svo góð að þeir munu ekki vilja grípa inn í - við erum nefnilega engir skrælingjar. Ekki hef ég mikla trú á þessari kenningu.

  2. hildigunnur Says:

    Maður þarf ekki að vera undrandi til að vera sár.

  3. Torfi Says:

    Er ekki Brown og stjórnin bara að tryggja sér nokkur atkvæði í komandi kosningum með því að vera rosa harður?

  4. anna Says:

    Loksins erum við sammála.
    En að öðru máli. Hver söng svona listilega vel Nallann á Arnarhóli í dag? Ég sat nývöknuð heima eftir næturvaktina er þetta var sýnt í sjónvarpinu og komst bara við af fögrum söng mannsins

  5. Stefán Says:

    Ég var nú ekki á Arnarhól. Fóru þessi mótmæli ekki fram á vinnutíma?

    En ekki yrði ég hissa þótt Þorvaldur Þorvaldsson hafi tekið lagið.

  6. Torfi Says:

    mér fannst ég greina rödd hans þegar það var sýnt frá þessu í fréttum

  7. kolbeinn Says:

    “Fóru þessi mótmæli ekki fram á vinnutíma?” Við munum sem sagt gera byltinguna í kaffihléum og eftir kvöldvakt?

  8. pallih Says:

    Nei Kolbeinn, 1. maí - þetta segir sig sjálft.

  9. Elías Says:

    The revolution will not be televised.

  10. Stefán Says:

    Brynjólfur Bjarnason missti af Gúttó-slagnum því hann var að kenna. Þar er ekki leiðum að líkjast.

Leave a Reply