Pelé

Af öllum leiðindagaurum knattspyrnuheimsins er Pelé hiklaust á topp-5 listanum.

Nýjasta útspil hans er að skamma Robinho fyrir að láta græðgina ráða för og ganga til liðs við Manchester City í stað þess að spila fyrir Real Madrid eða Chelsea (væntanlega af hugsjóninni einni saman).

Þetta kemur nú eiginlega úr hörðustu átt frá manni sem gekk til liðs við New York Cosmos.

7 Responses to “Pelé”

  1. Magnús Says:

    Eftir að hafa gert sig að fífli um áraraðir með ömurlegum spám um gengi hinna og þessara liða á stórmótum ætti hann nú að fara að hafa vit á því að þegja. En það er nú hluti af heimskunni.

  2. Óli Gneisti Says:

    Mér er minnisstætt þegar “Svart Perlan” hunsaði mig og aðra krakka sem höfðu beðið í lengri tíma til að fá eiginhandaráritun hans til þess að fara í sjónvarpsviðtal. Kannski að andúð mín á knattspyrnu sé honum að kenna? Eða kannski bara af því að þetta er leiðinleg íþrótt.

  3. pallih Says:

    Kannski er ástæðuna frekar að finna hjá þér, Óli…

  4. Magnús Says:

    Ekki jafn leiðinleg og að bíða eftir eiginhandaráritun.

  5. sVERRI Says:

    Mikið er ég sammála með Pele

    það kemur bara froða frá þeim manni í dag

  6. S. Wünder Says:

    Svín öðlast vængi áður en sá dagur rennur upp að fótboltamanneskja segir orð af viti. Við eigum að láta okkur nægja að dást að frábæru fótboltafólki á vellinum; þessum meðsystkinum okkar sem hafa nægilegan ásetning, einbeitingu og hæfileika til að verða viðbjóðslega góð í fótbolta. Fáránlegt að gera líka þær kröfur til þeirra að vera með eindæmum gáfuleg til orðs. Engum dettur í hug að hneykslast á hæfileikaleysi Nóbelsverðlaunahafa í fótbolta!

  7. Daði Says:

    Mjög góður punktur með NY Cosmos… :)

Leave a Reply