Næsta stríð
Hér er pólitÃskur spádómur:
Næstu vopnuðu átök à Evrópu verða ekki á Balkanskaga og þau verða ekki à GeorgÃu (þótt lÃklega megi búast við einhverjum smáskærum à AbkasÃu þar sem hópar Abkasa eða GeorgÃumanna munu reyna að rugga bátnum à von um að strÃð brjótist út.)
Þess à stað er ég smeykur um að næsta strÃð verði à Nagorno-Karabakh.
Héraðið er à svipaðri stöðu og AbkasÃa og Suður-OssetÃa. Það er innan viðurkenndra landamæra Azerbaijan, en hefur à raun verið sjálfstætt frá þvà að strÃði Armena og Azera um yfirráð þess lauk árið 1994.
StrÃðið um Nagorno-Karabakh var blóðugt og kostaði mörgþúsund mannslÃf. Friðurinn sem samið var um à kjölfarið hefur aldrei verið sérstaklega tryggur.
Fréttir sÃðustu daga af átökunum à GeorgÃu hafa flestar snúist um það hvort nýtt kalt strÃð sé à uppsiglingu. Það eru óþarfa áhyggjur. Hins vegar er miklu meiri ástæða til að hafa áhyggjur af þvà að atburðirnir à GeorgÃu geti leitt til nýs strÃðs vegna Nagorno-Karabakh.
Iiham Aliyev, forseti Azerbaijan, hlýtur að fylgjast af athygli með framvindu mála. Öll rök GeorgÃumanna fyrir þvà að halda með her sinn inn à Suður-OssetÃu eiga við varðandi Nagorno-Karabakh.
Aliyev á það sameiginlegt með GeorgÃuforseta að vera skilgreindur sem “okkar maður” - lýðræðissinni, umbótasinni og hvaðeina… Sú staðreynd að hann tók við völdum af pabba sÃnum, gamla KGB-foringjanum, komst til valda à kosningum sem alþjóðleg mannréttindasamtök gagnrýndu og að mótmæli stjórnarandstöðunnar hafa verið barin niður - hafa auðvitað engu breytt um stuðning Vesturlanda. Aliyev og Azerbaijan eru à “okkar liði” à strÃðinu gegn hryðjuverkum.
Þeir evrópsku ráðamenn sem nú klappa GeorgÃuforseta á bakið ættu að staldra við og leiða hugann að þvà à eitt augnablik hvernig à ósköpunum þeir hafa hugsað sér að bregðast við ef herinn à Azerbaijan ræðst inn à Nagorno-Karabakh á næstu mánuðum. Ãtökin à GeorgÃu væru hreinn barnaleikur miðað við afleiðingar slÃkrar innrásar.

August 27th, 2008 at 18:09
Bestu kvejur fra Uganda, herna er frabaert ad vera en margt skritid ad okkar mati.
Systa og Elvar
August 27th, 2008 at 21:24
Verða næstu vopnuðu átök à Evrópu à AsÃu?
August 28th, 2008 at 15:11
Svo er vÃst til eitthvað sem kallast TransnistrÃa sem er mjó ræma innan Moldóvu við landamæri ÚkraÃnu sem er aðallega byggð Rússum og er de facto sjálfstæð.
Ef Moldóvar fara að leita eftir þvà að komast à EB þá verður þetta væntanlega vesen. Félagsfræðitilraunir Sovétmanna eiga ennþá eftir að sjá okkur fyrir mörgum sniðugum smástyrjöldum.
August 29th, 2008 at 00:57
og hvað með Uzbekistan úr þvà farið er að teygja sig lengst austur til AsÃu?