Ekki fyrstur

Það er gott mál að Ásgeir Erlendsson taki að stigavörsluna í Gettu betur. Stigavarslan er alvörudjobb. Góður stigavörður getur snarminnkað líkurnar á mistökum í keppni.

Svo öllu sé nú haldið rétt til haga þá er rengt með farið í Fréttablaðinu að Ásgeir sé fyrsti karlkyns stigavörðurinn.

Árið 1990 sáu Oddný Eir Ævarsdóttir og Jón Atli Jónasson (síðar rithöfundur) um tíma- og stigavörslu. Þau voru hins vegar ekki eins áberandi og síðari stigaverðir, þar sem þau sátu ekki í sviðsmyndinni, heldur út í sal og var myndatökuvélunum sjaldan beint að þeim. - Þessi tilhögun var framkvæmanleg vegna þess að keppnisliðin svöruðu ekki eins ótt og títt í hraðaspurningum og síðar varð. (Meginhlutverk stigavarðar í dag er jú einmitt að reyna ásamt dómara að fá einhvern botn í þvoglumælt svör unglinganna í hraðaspurningum.) - Jón Atli var sem sagt fyrstur í sjónvarpi.

Raunar má eflaust hártoga titla þeirra sem komu að fyrstu keppninni, 1986. Þá voru einhverjar 5-6 manneskjur í settinu sem dómarar/spyrlar/tímaverðir/stigaverðir og ég man sannast sagna ekki hver hafði hvaða hlutverk. Ástæðan var sú að framhaldsskólanemarnir tveir sem seldu RÚV hugmyndina að keppninni og komu henni að talsverðu leyti á koppinn, gerðu það að skilyrði að þeim yrði falið hlutverk og að þeir fengju að sjást í sjónvarpinu. Held samt að þeir hafi frekar verið settir á skeiðklukkuna en í að telja stigin…

Í útvarpinu hafa svo ýmsir hlaupið í starf stigavarðar og þá fólk af báðum kynjum. Gott ef Björn Ingi Hrafnsson var ekki í þessu hlutverki á tímabili.

En ég óska Ásgeiri til hamingju með nýja djobbið. Ég spái frábærum vetri í GB, sem mun rústa hreppaspurningakeppninni í gæðum og vinsældum…

6 Responses to “Ekki fyrstur”

  1. HHG Says:

    Ásgeir Erlendsson er næsta stjarna fjölmiðlaheimsins, enda gjarnan verið titlaður næsti Logi Bergmann.

    Hann verður orðinn spyrill fyrir 25 ára aldur, og kominn með eigin spjallþátt fyrir þrítugt. Munið þessi orð.

    kveðja,

    N.Damus

  2. Stefán Says:

    …já…

    …hann gæti líka orðið næsti Jón Gústafsson, sem varð einmitt spyrill fyrir 25 ára aldurinn.

    Þá er alltaf hægt að vera með kommbakk í SPK.

  3. pallih Says:

    Who the fuck?

  4. Gísli Says:

    Ég hef mikinn áhuga á kynferðislegu spennunni sem sögð er verða í þáttunum og birtingarformi hennar.

  5. Björn Ingi Hrafnsson Says:

    Þetta passar hjá þér. Sigurður G. Tómasson var þá spyrill og hvort Ólafur B. Guðnason samdi þá ekki spurningar. Ég var þá útvarpsmaður á Rás 2 og hljóp stundum í skarðið. Af augljósum ástæðum átti það þó ekki við sjónvarpskeppnina…

  6. Kristín Says:

    Ég vil bara (þó seint sé) minna á að Oddný Eir Ævarsdóttir var einnig síðar rithöfundur.
    Og tek undir með Gísla að kynferðislega spennan var áhugaverður vinkill á fréttina í Fbl.

Leave a Reply